Haldið upp á Evrópska tungumáladaginn Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 26. september 2013 12:00 "Við fáum kennara sem náð hafa góðum árangri í tungumálakennslu til að miðla fróðleik,“ segir Auður. Fréttablaðið/Vilhelm
Evrópski tungumáladagurinn er í dag. Hátíðadagskrá í tilefni hans verður í Bratta, fyrirlestrasal Menntavísindasviðs HÍ í Stakkahlíð, og hefst klukkan 16. Yfirskriftin er Tungumálakennsla í takt við tímann. „Þetta er góður, árviss dagur sem kennarar eru jafnan duglegir að taka þátt í,“ segir Auður Hauksdóttir, forstöðumaður Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur, um evrópska tungumáladaginn og drepur á nokkur atriði hátíðadagskrár sem hefst í Bratta klukkan fjögur í dag. Yfirskriftin er Tungumálakennsla í takt við tímann. Meðal efnis er erindi Michael Dal, dósents í dönsku, um möguleikana sem tölvutæknin felur í sér. „Ég veit að mörgum kennurum er umhugað um að efla hæfileika nemenda til að tjá sig. Tölvan getur bætt þar heilmiklu við ef hún er notuð í þágu námsins,“ bendir Auður á og rifjar upp að þegar hún hafi kennt dönsku í framhaldsskólum hafi hún beðið vini sína í Danmörku að fylgjast með dagskrá ljósvakamiðla, taka upp valið efni og senda sér í pósti. „Ég gat svo spilað efnið í tímum viku til hálfum mánuði seinna og þetta þótti flott þá. Núna gerir tæknin mögulegt að vera með tungumál í tölvum inni í kennslustund og það ætti að geta bætt nýjum víddum inn í kennsluna, þannig að hún skili meiri árangri.“ Auður segir marga skóla hafa byrjað tungumálakennslu mjög snemma, jafnvel á leikskólastigi, sem val. „Þá er verið að nýta hæfileika ungra barna til að tileinka sér talmál og framburð. Á samkomunni í dag mun Sólveig Simha frönskukennari, sem hefur mikla reynslu af því að kenna ungum börnum frönsku, útskýra hvaða aðferðum hún beitir,“ segir Auður. Hún nefnir líka Idu Semey og Ásdísi Þórólfsdóttur, spænskukennara í MH, sem hafa verið að kenna þriðja tungumál. „Þær lýsa því hvernig þær nota tónlist og myndir til að hjálpa nemendum að tjá sig. Það mikilvægasta er að menn noti tungumálið,“ bendir hún á og segir marga tungumálakennara hafa áhyggjur af stöðu þriðja máls í skólakerfinu. Auður segir áhugavert að skoða hver staða enskunnar sé hér á landi. „Börn hafa ensku mun meira á takteinum nú en áður. Þetta þarf skólakerfið að nýta og gera þau afbragðsgóð í ensku, hvað stílbrögð og orðaforða snertir. Það eru ögranir í því og Björn Gunnlaugsson, enskukennari og skólastjóri grunnskólans á Dalvík ætlar að fjalla um það,“ segir Auður. „Við reynum að nálgast efnið út frá ólíkum sjónarhornum, spáum í hvaða ögrandi verkefnum við stöndum frammi fyrir og fáum kennara sem náð hafa góðum árangri í tungumálakennslu til að miðla fróðleik.“ Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum stendur að hátíðadagskránni í samvinnu við mennta- og menningarmálaráðuneytið og STÍL – samtök tungumálakennara á Íslandi. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.
Menning Mest lesið Fyrrverandi eiginmaður Kelly Clarkson látinn Lífið Nígerskt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju Lífið „Magnað innra ferðalag“ að horfast í augu við saklausa barnið í sér Lífið Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Lífið samstarf Hvers vegna fær Innrásin frá Mars núll í einkunn? Lífið McConaughey glutraði niður tækifærinu í Titanic Lífið Hver dáleiðsla er spennandi og ófyrirsjáanlegt ferðalag Lífið samstarf Stjörnulífið: „Þessi ætlar að ríða þessa Verslunarmannahelgina“ Lífið Þríbætti tíma kærastans í einni stærstu spyrnukeppni Evrópu Lífið Orðin vön ferðamönnum í garðinum og fagnar komu þeirra Lífið Fleiri fréttir Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira