Gefa miða á stærstu danshátíð heims 15. janúar 2013 16:30 "
Þetta er stærsta danshátíð í heimi þar sem um 250 af frægustu plötusnúðum heims, frá 75 mismunandi löndum, spila tónlist í þrjá daga," segir plötusnúðurinn Ólafur Geir Jónsson um danshátíðina Tomorrowland, sem er haldin í Belgíu í lok júlí ár hvert. Um 200.000 miðar eru í boði á hátíðina, sem yfirleitt seljast upp á örfáum klukkutímum. "Það voru um 100 Íslendingar sem ætluðu að fara í hópferð í fyrra en svo fengu bara örfáir þeirra miða. Þetta er svakalega stórt og stækkar bara með hverju árinu, en þarna er að finna öll stærstu nöfnin í bransanum," segir Ólafur Geir, en á meðal þeirra sem þeyta skífum á hátíðinni eru David Guetta, Tiesto og Swedish House Mafia. Ólafur Geir stjórnar útvarpsþættinum Music Matters öll laugardagskvöld á útvarpsstöðinni Flass og ætlar þátturinn í samstarfi við Smirnoff að gefa fimm miða á hátíðina, með flugi og öllu tilheyrandi. "Þátturinn stendur fyrir sérstökum Music Matters-partíum mánaðarlega fram að hátíðinni og þar verða ferðirnar gefnar. Allir sem kaupa sér miða inn á kvöldin fara í pott og svo er einn dreginn út. Ég verð að spila á þessum kvöldum, sem verða haldin víðs vegar um landið," segir Ólafur Geir. Fyrsta kvöldið verður næstkomandi laugardag á Úrillu Górillunni á Höfða og opnar húsið á miðnætti.- trsHér má skoða upplýsingar um atburðinn á Facebook.Stærstu nöfnin í dansbransanum koma fram á Tomorrowland. Mynd/AFP
Tónlist Mest lesið Michael Bolton með ólæknandi krabbamein Lífið Forsalan sögð slá öll fyrri met Lífið Gerði samning við Apple: „Þetta er ótrúleg viðurkenning“ Lífið Justin Bieber nýtur sín norður í landi Lífið „Burtu með fordóma“ tónleikar á Selfossi 1. maí Lífið Segir netheima kexruglaðra hafa gert sig að mennskum boxpúða Lífið Hafa náð að auka ráðstöfunartekjur sínar um 37 prósent Lífið Gengst við kókaínfíkn sinni Lífið Fimmtán ára og gefur út frumsamda plötu Tónlist Hver myndi vinna í slag, hundrað gaurar eða ein górilla? Lífið Fleiri fréttir Fimmtán ára og gefur út frumsamda plötu Elti ástina til Íslands „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Eyddi unglingsárunum inni í þvottahúsi Gefa út sína fyrsta plötu síðan 2001 Þrumustuð þegar lag Barnamenningarhátíðar var frumflutt Sækir innblásturinn í rússnesku ræturnar Sjá meira