0,0% en samt skrambi góður Úlfar Linnet skrifar 22. desember 2013 15:58
Síðastliðið vor einkenndist af bið en konan mín var þá gengin nokkuð langt. Til að sýna samstöðu og ábyrgð lagði ég bjórinn á hilluna og snéri mér að léttari drykkjum. Heimsóknir á gosdrykkjasíðu dr. Gunna voru orðnar daglegt brauð og fáar stórmarkaðsheimsóknir voru án smá rannsóknar á óáfenga úrvalinu. Í einni slíkri ferð rakst ég á 0.0% hveitibjór sem vakti athygli en um leið hófstilltar væntingar. Þegar heim var komið helti ég bjórnum í glas og viti menn, hann var skrambi góður. Sælan var þó skammvinn því rúmri viku seinna hafði ég tæmt allar verslanir nærri mér og sá ekki bjórinn meira það sumar. En hvern haldið þið að ég hafi rekist á rétt fyrir jól, engan annan en Bavaria Wit. Mættur aftur í kælinn þar sem skrýtna gosið er geymt. Bavaria Wit er strágulur bjór með ljósa froðu. Ilmurinn einkennist af appelsínum, kóríander og blómlegri agave sætu. Í Bavaria Wit, eins og mörgum hveitibjórum, eru það ekki humlar sem vinna á móti sætu bjórsins heldur sýra. Hann hefur því eilítið súrt en hressandi eftirbragð. Þrátt fyrir að bjórinn hafi flest einkenni venjulegs hveitibjórs vantar í hann áfengið. Hann er því að öllu leiti mun léttari og fylling í bragði minni. Keppir seint við sannan hveitibjór en nýtur sín vel þegar áfengis er ekki óskað.Fyrir hverja: Alla sem ekki vilja eða ekki mega drekka áfengi Ekki fyrir: Þá sem stefna út á galeiðuna Staður og stund: Við akstur, á meðgöngu, í barnafmælum og öðrum fjölskyldustundum Rangur staður: Finnskt partý
Úlfar Linnet Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist