Ein grófasta kvikmyndastikla sögunnar sett á vefinn Orri Freyr Rúnarsson skrifar 4. nóvember 2013 15:40 Plakat fyrir Nymphomaniac
Kvikmyndaáhugafólk og pervertar um heim allan hafa haft ástæðu til að fagna í dag en þá var ný stikla úr kvikmyndinni Nymphomaniac gerð aðgengileg á veraldarvefnum. Klippan er í grófari kantinum svo vægt sé til orða tekið en myndin segir frá Joe, sem leikinn er af Charlotte Gainsbourg, og hennar kynlífsupplifunum. Leikstjóri myndarinnar er Lars Von Trier sem er þekktur fyrir að fara óhefðbundnar leiðir við kvikmyndagerð og er hann gjarn á að ganga fram af áhorfendum og því hafa margir einfaldlega gengið útaf myndum hans. Í myndinni Nymphomaniac hefur Lars Von Trier þó fengið fjöldan allan af stórstjörnum til liðs við sig en á meðal leikara í myndinni má nefna, Shia LaBeouf, Uma Thurman, Willem Dafoe, Stellan Skarsgard, Christian Slater, Jamie Bell, Mia Goth og fyrrnefnd Charlotte Gainsbourg. Ný tækni var notuð til að taka upp grófustu kynlífsatriðin en í þeim atriðum voru leikarar myndarinnar teknir upp þar sem þeir þóttust stunda kynlíf og svo voru sömu atriði tekin upp aftur þar sem um alvöru kynlíf var að ræða með staðgenglum. Þessum atriðum er svo skeytt saman með nýjustu tækni og er því um aðalleikarana að ræða fyrir ofan mitti en staðgengla fyrir neðan mitti. Myndin verður frumsýnd í Danmörku þann 25.desember nk. Nymphomaniac appetizer - Chapter 5: The Little Organ School from Zentropa on Vimeo.
Harmageddon Mest lesið Píratar bjóða fram í Reykjavík Harmageddon Maðurinn sem framleiðir sitt eigið áfengi innvortis Harmageddon „Við þurfum að kenna krökkum að taka eiturlyf með öruggum hætti“ Harmageddon Hljómsveitin Maus loksins aftur á svið Harmageddon Íslam í Reykjavík Harmageddon Sannleikurinn: Halda að fólk myndi virkilega kaupa lélega tónlist og myndir Harmageddon The Cure, Kiss, Alice Cooper og fleiri á Paul McCartney heiðursplötu Harmageddon Söngvari Stone Roses vitni í kynferðisafbrotamáli Harmageddon Sannleikurinn: Sminkurnar á Stöð 2 að gefast upp á Loga Bergmann Harmageddon Tíu ástæður fyrir því að hugmynd Vigdísar er rosalega vond Harmageddon