Sannleikurinn: Viltu vinna miða á landsleikinn Andri Þór Sturluson skrifar 29. október 2013 09:28 Íslenska landsliðið á góðri stund.
Fréttastofa Sannleikans ætlar að gefa 10 heppnum stuðningsmönnum miða fyrir tvo á leik Íslands og Króatíu þann 15. nóvember sem fram fer á Laugardalsvellinum. Um er að ræða stærsta knattspyrnuleik í sögu karlalandsliðs Íslands en liðið mætir Króötum tvívegis 15. og 19. nóvember í umspili um sæti á heimsmeistaramótinu í Brasilíu sem fram fer næsta sumar. Það eina sem þú þarft að gera til að komast í pottinn og vinna miða er að niðurlægja sjálfan þig á Facebook. Það getur þú gert með því að deila Facebook síðu Sannleikans eins og óþolandi vinningahóran sem þú ert. Gefa síðan upp símanúmerið þitt hér í kommentakerfinu sem við seljum til þriðja aðila og loks breyta prófílmyndinni þinni á Facebook í rollu sem nautheimsk eltir hjörðina en telur samt innst inni að hún sé sérstök. Þú þarft svo bara að fylgjast vel með næsta áratuginn og sjá hvort þú ert ekki ein/n af þeim heppnu!Sannleikurinn rekur öfluga og óvæga fréttastofu þar sem engum er hlíft og sannleikurinn skiptir ekki höfuðmáli. Sannleikurinn er háður öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunaaðilum um fréttaefni sitt. Fréttastofa Sannleikans hefur Facebook-síðu en þar er oft hægt að verða heppinn.
Harmageddon Mest lesið Sannleikurinn: Ákæruvaldið reyndi að fá barn dæmt fyrir að svíkjast um að stunda vændi Harmageddon Bandarískir rapparar hrifnir af Actavis Harmageddon Ætlaði að drepa Dave Grohl Harmageddon Hvíta ekkjan ekki í hópi hryðjuverkamanna Harmageddon Nýtt myndband Kiriyama Family frumsýnt á Vísi Harmageddon Rokkprófið - Aðalbjörn í Sólstöfum vs. Regína Ósk Harmageddon Oasis að koma saman að nýju? Harmageddon Hver drap Kurt Cobain? Sýnishorn úr nýrri mynd Harmageddon Heill tugur mætti til makrílveislu Harmageddon „Þeir sleppa aðal sannleikanum“ Harmageddon