Porsche Cayman kominn til landsins 26. apríl 2013 10:35
Var kosinn sportbíll ársins í heiminum á bílasýningunni í New York. Sportbíll ársins var valinn á bílasýningunni í New York um daginn. Þá vegtyllu hlutu systurbílarnir Porsche Boxter/Cayman. Bílabúð Benna sýndi nýjan Boxter fyrir ekki svo löngu og nú er komið að Porsche Cayman. Oft hefur verið talað um Boxter og Cayman sem “baby” Porsche 911, en þeir eru báðir umtalsvert minni en hinn goðsagnarkenndi og frægasti sportbíll í heimi. Engu að síður eru þeir báðir mjög öflugir og fimir eins og stóri bróðirinn og umtalað er hversu nálægt þeir eru komnir getu 911 bílsins þrátt fyrir að kosta nærri helmingi minna. Cayman kom fyrst á markað fyrir 8 árum en er nú kynntur af þriðju kynslóð.Sex strokka Boxer velar og PDK sjálfskiptingVélarnar sem bjóðast í Porsche Cayman eru 2,7 lítra og 275 hestafla sex strokka bensínvél og 3,4 lítra og 325 hestafla einnig sex strokka bensínvél, báðar af Boxer gerð. Sjö gíra frábær PDK sjálfskipting með tveimur kúplingum tengist vélunum og hann er afturhjóladrifinn. Hann má að sjálfsögðu einnig fá með beinskiptingu, þá 6 gíra. Sem fyrr má eingöngu fá Cayman með hörðum toppi en hann er ekki framleiddur með blæju líkt og 911 og Boxter. Í Cayman má nú finna allar þær uppfærslur sem litu dagsins ljós í nýjum 911 og Boxter bílum.Örlítið stækkað og bara batnaðNýr Cayman hefur örlítið stækkað og fjarlægð milli hjóla aukist. Hann hefur þó lækkað örlítið og notkun léttari efni við smíði hans hefur létt hann um 30 kíló. Ástæðulaust er að fara mörgum orðum um aksturseiginleika Cayman, en bíll sem kosinn er sportbíll ársins er náttúrulega frábær akstursbíll og gæðin umfram verð. Margur bílablaðamaðurinn hefur fullyrt að kosta þurfi meira en tvöföldu fé til að finna betri akstursbíl. Því ættu áhugasamt akstursfólk að kíkja á gripinn hjá Bílabúð Benna á morgun, laugardag milli 12 og 16, en þar verður hann frumsýndur.
Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent