Missa Þjóðverjar af EM í Danmörku? Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 5. apríl 2013 11:30 Martin Heuberger. Nordic Photos / Getty Images
Þýskaland er í miklu basli í undankeppni EM 2014 í handbolta eftir að liðið tapaði fyrir Tékklandi í gær. Tékkar fögnuðu tveggja marka sigri á heimavelli, 24-22, og skildu því Þjóðverja eftir í þriðja sæti riðilsins með aðeins tvö stig eftir þrjá leiki. Svartfjallaland trónir á toppi riðilsins með sex stig af sex mögulegum. Liðið lenti að vísu í tómu basli gegn Ísrael í vikunni og vann nauman eins marks sigur. Tvö efstu liðin komast áfram á EM í Danmörku og ljóst að Þjóðverjar mega helst ekki við því að tapa öðrum leik í riðlinum. Liðið mætir Tékkum á heimavelli á sunnudag og tap í þeim leik gæti endanlega gert út um vonir Þýskalands. Martin Heuberger er landsliðsþjálfari Þýskalands og naði ágætum árangri með liðið á HM á Spáni. Það er þó ljóst að starf hans myndi hanga á bláþræði ef Þýskaland myndi missa af EM á næsta ári.
Þýski boltinn Mest lesið Vill að forsetar eins og Trump verði sendir sjálfir á víglínuna Enski boltinn Albert með mark og stoðsendingu í gríðarlega mikilvægum sigri Fótbolti Fékk rautt fyrir að klípa í klofið Fótbolti Afar vandræðalegt viðtal við Tudor: „Erum við búnir eða ekki?“ Enski boltinn Almar, Birgir Leifur og Friðrik Leó með í Marsfárinu Körfubolti Carragher brjálaður: „Létu Tottenham líta út fyrir að vera fínt lið“ Enski boltinn Sjáðu Sveindísi stinga af og leggja upp Fótbolti Sjáðu Richarlison refsa Liverpool og Bruno nálgast metið Enski boltinn VIP-miðar í boði til að komast nær strákunum okkar Handbolti Sló í fugl en það dugði ekki til Golf Fleiri fréttir Ísak dró sig úr hópnum gegn Svíum VIP-miðar í boði til að komast nær strákunum okkar Viggó og Andri fengu skell gegn meisturunum Nýbakaði faðirinn með níu mörk Íslendingaliðið úr leik eftir tap í undanúrslitum Víkingur Reykjavík upp í Olís deildina „Þetta er ekki búið“ Sara Dögg í miklum ham er ÍR styrkti stöðu sína Valur - Fram 32-31 | Risaleikur Lovísu kláraði Fram „Hefði verið leiðinlegt að skora öll þessi mörk og tapa“ Donni drjúgur og Elvar með frábæran leik Selfoss hafði sætaskipti við Stjörnuna á botninum Haukar stöðvuðu sigurgöngu Eyjakvenna Stiven flaug áfram í átta liða úrslit Teitur og Elliði unnu Íslendingaslaginn Haukur og félagar eyðilögðu hátíðarhöld Guðmundur og Ísak að missa af úrslitakeppninni Tvisvar markakóngur fyrir tvítugt „Þetta er svolítið skrítið því ég vil ekki „jinxa“ neitt“ „Þórsarinn er svo geggjaður“ Þór - KA 31-31 | Allt jafnt í æsispennandi Akureyrarslag FH - ÍR 34-28 | FH sendi ÍR niður um deild „Þú ert að biðja mig um að finna eitt stig“ Valur sótti deildarmeistaratitil til Eyja Orri fagnaði dramatískum sigri og fer til Póllands Íslendingaliðið lauk leik með tapi en Bjarki Már mætir GOG eða PSG Rosaleg lokaumferð: Þrjú lið geta unnið titil og þrjú í fallhættu Viktor Gísli frábær og Barca endaði á toppnum „Fannst tilvalið að vera með í þessu“ Björgvin ekki af baki dottinn: „Bara eins lengi og mín er þörf“ Sjá meira