Þungarokkarar taka yfir Eldborg í Hörpu 4. mars 2013 15:00
Hljómsveitakeppnin Wacken Metal Battle fer fram í Eldborgarsal Hörpu hinn 6. apríl. Sex sveitir munu keppa um að komast á Wacken Open Air, stærstu þungarokkshátíð heims, sem haldin er í Wacken í Þýskalandi í byrjun ágúst. Þar mun íslenski sigurvegarinn spila fyrir mörg þúsund manns og taka þátt í lokakeppni Wacken Metal Battle. Í ár munu hljómsveitirnar Abacination, Azoic, Blood Feud, In the Company of Men, Moldun og Ophidian I keppa. Þetta er í fimmta sinn sem keppnin er haldin hér á landi, en í fyrra fór hljómsveitin Gone Postal með sigur af hólmi. Gone Postal kemur fram á keppninni í Eldborg ásamt einni af efnilegri metalsveitum landsins, Trust The Lies, og íslensku þungarokkskóngunum í Skálmöld, sem munu taka "fullt sett". Sigursveitin ytra hlýtur síðan að launum hljómplötusamning við eitt stærsta óháða útgáfufyrirtæki heims, Nuclear Blast ásamt fullt af hljóðfærum og græjum. Einnig verða veglegir vinningar hérna heima, sem kynntir verða síðar. Miðasala hefst á harpa.is og midi.is á hádegi á miðvikudag. Hægt er að fylgjast nánar með á Facebook-síðu keppninnar.
Tónlist Mest lesið Stjörnulífið: „Já, ég er klámfíkill“ Lífið Quang Le „virkilega indæll og mjög næs náungi“ Lífið Úr Eurovision í jógað: „Var ekki nógu góð við sjálfa mig eftir þetta“ Lífið Listapör, dansfjölskylda og rjómi senunnar á Garðinum Lífið Er óeðlilegt að gift fólk frói sér? Lífið Fram, fram, framakonur Lífið Svona var hálfleiksatriði Bad Bunny: „Guð blessi Ameríku“ Lífið Maturinn í Ofurskálinni: Vængirnir étnir í tonnatali Lífið Inspector Spacetime í Apple auglýsingu: „Mjög súrrealískt“ Tónlist Að vera neitað um listamannalaun reyndist algjör frelsun Lífið Fleiri fréttir Inspector Spacetime í Apple auglýsingu: „Mjög súrrealískt“ „Ég er að heiðra litla Aron“ „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Högni hjálpar fólki að slaka á Kristinn Svavarsson er látinn Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Sjá meira