Tilboð á veiðileyfum frá þeim stóru Garðar Örn Úlfarsson skrifar 8. mars 2013 22:23 Bjarni Júlíusson, formaður SVFR, í önnum í Norðurá í fyrrasumar. Mynd / Trausti.
Tveir stærstu veiðileyfasalarnir kynna nú tilboð í Norðurá og Tannastaðatanga í sumar. Stangaveiðifélag Reykjavíkur býður frítt fæði með keyptum leyfum á aðalsvæðunum í Norðurá dagana 23. til 25. ágúst. Stangardagurinn er á 49.900 krónur. Hjá Lax-á er hægt að kaupa laxveiðileyfi í Tannastaðatanga á mótum Sogs og Hvítár fyrstu tíu dagana í júlí með 23 prósent afslætti. Þá kostar dagsstöngin 17.500 krónur í stað 22.800 króna samkvæmt verðskrá. Alvanalegt hefur verið að sjá slík tilboð á veiðileyfum hjá Lax-á undanfarin ár. Sjaldgæfara hefur verið að Stangaveiðifélag Reykjavíkur hafi gripið til þessa ráðs. Þá er reyndar undanskilið eftirhrunssumarið 2009 þegar Stangaveiðifélagið bauð félagsmönnum nokkur svæði með allt að helmings afslætti.
Stangveiði Mest lesið Spá góðu smálaxaári Veiði Gleymir stund og stað við árbakkann Veiði Fín sjóbleikjuveiði í Hraunsfirði Veiði 70-90 laxa dagar í Eystri Rangá Veiði Vatnsdalsá með 76 laxa og 83 sm meðallengd Veiði Gæsaveiðin hófst í dag Veiði Birtingurinn mættur í Varmá Veiði Frýs í lykkjum og takan eftir því Veiði Laxinn kominn upp á efri svæðin í Kjós Veiði Stórir urriðar í Laxárdalnum þrátt fyrir kulda Veiði