Vesturport leitar að persneskum teppum 4. desember 2012 06:00 "
Mig vantar aðallega ábendingar um hvar þessi persnesku teppi er að finna, ég er að verða uppiskroppa með hugmyndir,“ segir Rakel Garðarsdóttir, framkvæmdastjóri Vesturports. Leikhópurinn auglýsir eftir persneskum teppum fyrir leikmynd Hamskipta. Hamskipti eru á leiðinni á heljarinnar flakk vestanhafs, til London og Þýskalands eftir áramót og þess vegna vantar sex til átta stór teppi. Þau mega vera bæði götótt og slitin að sögn Rakelar. „Við erum að byggja þriðju leikmyndina fyrir Hamskiptin á Seyðisfirði, og þess vegna vantar mig núna ábendingar um hvort einhver lumi á þessum teppum inn í geymslu hjá sér og í staðinn fyrir að henda þeim, vilji láta okkur fá þau,“ segir Rakel sem býðst til að sækja gripina. Hamskipti verða sýnd í Kanada, Boston og Washington strax eftir áramót. Auk þess verðu hún sett upp í München í Þýskalandi í vikunni og svo sett aftur upp í London í janúar. Þar var hún var valin ein af þeim sýningum sem Lyric Hammersmith-leikhúsið telur hafa tekist best til með á þessum áratug og fara meðal annars Ingvar E. Sigurðsson, Gísli Örn Garðarsson og Nína Dögg Filippusdóttir út til að sýna verkið. "Þannig að við verðum með þrjár leikmyndir í fullri notkun á næsta ári sitthvoru megin við Atlantshafið,” segir Rakel og bætir við að hún þakklát fyrir allar ábendingar. Þeir sem luma á teppum eða ábendingum um hvar þau er að finna eru beðnir um að hafa samband við Rakel á póstfanginu rakel@vesturport.com. - áp
Menning Mest lesið Nígerískt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju Lífið Nígerísk hjón reisa glerkastala í Kjós og flytja inn tonn af blómum til að gifta sig aftur Lífið Hver er Endakallinn frá Ibiza? Lífið Fyrrverandi eiginmaður Kelly Clarkson látinn Lífið „Magnað innra ferðalag“ að horfast í augu við saklausa barnið í sér Lífið Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Lífið samstarf Hvers vegna fær Innrásin frá Mars núll í einkunn? Lífið McConaughey glutraði niður tækifærinu í Titanic Lífið Hver dáleiðsla er spennandi og ófyrirsjáanlegt ferðalag Lífið samstarf Orðin vön ferðamönnum í garðinum og fagnar komu þeirra Lífið Fleiri fréttir Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira