Samdi lag við ljóð mömmu FB skrifar 13. október 2012 06:00 Jónas Sigurðsson ásamt hinu fagra föruneyti sem aðstoðaði hann við gerð plötunnar.
Tónlistarmaðurinn Jónas Sigurðsson samdi lag við ljóð móður sinnar Rögnu Erlendsdóttir á þriðju sólóplötu sinni, Þar sem himinn ber við haf, sem kemur út á næstu dögum. Ragna er meðlimur í tónlistarbandi eldri borgara í Þorlákshöfn, Tónar og trix, og það spilar einmitt undir í laginu. „Mamma var búin að semja ljóð sem fjallar um að búa við hafið og mér fannst það svo fallegt,“ segir Jónas. „Ég hugsaði með mér að þetta yrði nú að vera eitt lag á plötunni. Þannig að ég samdi lag við ljóðið hennar mömmu, Tónar við hafið. Það stingur svolítið í stúf við hin lögin á plötunni en hugmyndalega þá passar það alveg.“ Aðspurður segir Jónas að mamma hans sé alveg í skýjunum yfir laginu. „Hún var rosalega glöð og þau öll í bandinu þegar þau heyrðu lagið. Það var dásamlegt augnablik þegar ég setti heyrnartól á mömmu og spilaði fyrir hana. Það er með því betra sem ég hef upplifað.“ Plötu Jónasar verður fylgt eftir með risatónleikum í Reiðhöll Þorlákshafnar helgina 19. og 20. október þar sem Lúðrasveit Þorlákshafnar kemur fram, en hún spilar undir á plötunni. Nú þegar er uppselt á fyrri tónleikana. Allt samfélagið ætlar að taka þátt í að gera þennan viðburð ógleymanlegan, en Jónas er uppalinn í bænum. „Þetta verða flottir tónleikar með „surround“-kerfi, vídeósýningu og öllum græjum,“ segir hann og hlakkar mikið til.
Tónlist Mest lesið Michael Bolton með ólæknandi krabbamein Lífið Forsalan sögð slá öll fyrri met Lífið Gerði samning við Apple: „Þetta er ótrúleg viðurkenning“ Lífið „Þetta er lúmskt skrímsli“ Lífið Justin Bieber nýtur sín norður í landi Lífið Segir netheima kexruglaðra hafa gert sig að mennskum boxpúða Lífið „Burtu með fordóma“ tónleikar á Selfossi 1. maí Lífið Hafa náð að auka ráðstöfunartekjur sínar um 37 prósent Lífið Hver myndi vinna í slag, hundrað gaurar eða ein górilla? Lífið Gengst við kókaínfíkn sinni Lífið Fleiri fréttir Fimmtán ára og gefur út frumsamda plötu Elti ástina til Íslands „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Eyddi unglingsárunum inni í þvottahúsi Gefa út sína fyrsta plötu síðan 2001 Þrumustuð þegar lag Barnamenningarhátíðar var frumflutt Sækir innblásturinn í rússnesku ræturnar Sjá meira