Fínir Hljómskálafélagar Trausti Júlíusson skrifar 6. júní 2012 20:00 Sigtryggur Baldursson og Megas stigu báðir á svið í Hörpunni. fréttablaðið/anton
Tónleikar. Hljómskálinn. Listahátíð - Harpa Eldborg, 2. júní. Þeir Hljómskálafélagar eru allt í öllu í opinbera poppinu þessi misserin. Þeir byrjuðu á sjónvarpsþáttaröð í haust. Hún var frábær og setti ný viðmið í tónlistarþáttagerð fyrir sjónvarp á Íslandi. Síðan gerðu þeir jólaþátt, páskaþátt og þátt um Íslensku tónlistarverðlaunin. Á laugardaginn settu þeir svo saman tónleikadagskrá fyrir Listahátíð sem var eina íslenska poppatriðið á dagskrá hátíðarinnar í ár. Öll þessi verkefni hafa þeir Sigtryggur Baldursson, Guðmundur Kristinn Jónsson og Bragi Valdimar Skúlason leyst með miklum ágætum og tónleikarnir í Eldborg voru engin undantekning. Húshljómsveit Hljómskálans er viðhafnarútgáfa af Hjálmum, en á tónleikunum fengu þeir fjölmarga söngvara til að stíga á svið, meðal annarra Megas, Ágústu Evu, Valdimar og Egil Sæbjörnsson. Á dagskránni voru ný og gömul lög og nokkur þeirra laga sem sérstaklega hafa verið samin fyrir sjónvarpsþættina. Tónleikarnir fóru rólega af stað og í byrjun var hljómburðurinn í salnum slæmur, a.m.k. þar sem ég sat á ellefta bekk. Sérstaklega var bassasándið vont. Maður hafði smá áhyggjur af því að þetta yrði sundurklippt og fullt af kynningum þar sem tónleikunum var sjónvarpað beint, en þær áhyggjur voru óþarfar; tónleikaformið var tekið fram yfir sjónvarpsþáttaformið og tónlistin fékk að hljóma án truflana. Þegar leið á lagaðist sándið og tónlistaratriðin urðu sterkari. Á meðal toppanna voru lögin tvö sem Jimi Tenor flutti ásamt Hjálmum (það verður spennandi að heyra plötuna sem þeir eru að vinna að saman) og míníópera Óttars Proppé, Röggu Gísla og Sigtryggs, sem samanstóð af lögum af Diskóeyjunni og af plötunni Í sjöunda himni með Glámi og Skrámi. Mjög skemmtilegt. Það var líka frábært að heyra Magnús Þór Sigmundsson og Jónas Sigurðsson taka smellinn Ef ég gæti hugsana minna og hápunkturinn var svo þegar Pálmi Gunnarsson söng kraftmikla útgáfu af laginu Hvers vegna varst'ekki kyrr. Tónleikunum lauk svo með því að Unnsteinn Manúel og Björn Jörundur sungu lagið Frelsið. Á heildina litið fín skemmtun. Niðurstaða: Listahátíðardagskrá Hljómskálans í Hörpu tókst prýðilega.
Mest lesið Aðeins of leiðinlegt til að vera skemmtilegt Gagnrýni Stjörnulífið: Kim Kardashian norðursins fundin Lífið Fótboltastelpan sem endaði í kristnum háskóla í suðurríkjunum Lífið Gunnar Smári látinn heyra það fyrir færslu um Davíð á Sorpu Lífið „Ætla að verða ógeðslega fræg og ógeðslega rík” Lífið Stjörnum prýtt afmæli Nínu Lífið 48% aukið áhorf á sjónvarpsstöðvar Sýnar Lífið samstarf Þessi eru tilnefnd til Golden Globe-verðlauna Lífið Vilja minnka allt þetta neikvæða suð Menning Deila fyrstu myndunum af hvort öðru Lífið Fleiri fréttir Aðeins of leiðinlegt til að vera skemmtilegt Vonlaust í víkinni Hörkuhasar þótt persónusköpun skorti Bragðlaust eins og skyr með sykri Sambandslaus Hamlet Sjá meira