Tónar og tal um Pál á Húsafelli 23. mars 2012 17:30 Páll á Húsafelli verður í aðalhlutverki í Gerðubergi á morgun.
Tónlistardagskrá verður í Gerðubergi á morgun í tilefni sýningar Páls á Húsafelli sem stendur yfir í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi. Tónleikarnir hefjast klukkan tvö en fram koma Steindór Andersen, Hilmar Örn Hilmarsson, Páll á Húsafelli, Guðný Guðmundsdóttir konsertmeistari, Ástríður Alda Sigurðardóttir píanóleikari og Þórgunnur Anna Örnólfsdóttir sópran og barnabarn Thors Vilhjálmssonar. Tónleikarnir og sýningin eru tileinkuð minningu Thors Vilhjálmssonar rithöfundar. Klukkan 16.20 verður svo heimildarmyndin Bréfmiði til Páls frumsýnd en hún er eftir Kristin Örn Guðmundsson. Hugmyndin að þessari heimildarmynd kviknaði þegar samsýning Páls og Thors Vilhjálmssonar sem bar heitið „Heilög Cecilía" var haldin í Hallgrímskirkju árið 2008. Thor og Páll höfðu í gegnum árin unnið mikið saman í listinni og bundust miklum vinaböndum. Framleiðsla og gerð þessarar myndar hefur verið í höndum Kristins Arnar Guðmundssonar. Þetta er hans fyrsta mynd í fullri lengd.
Menning Mest lesið Myndaveisla: Tröllatrukkur og Rolls Royce á svæðinu þegar hjónin gengu út Lífið Nígerísk hjón reisa glerkastala í Kjós og flytja inn tonn af blómum til að gifta sig aftur Lífið Nígerískt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju Lífið Hver er Endakallinn frá Ibiza? Lífið Bay segir skilið við Smith Lífið Hver dáleiðsla er spennandi og ófyrirsjáanlegt ferðalag Lífið samstarf Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Lífið samstarf Eftir þrettán ára nám fékk Saga bílpróf Lífið „Magnað innra ferðalag“ að horfast í augu við saklausa barnið í sér Lífið Fyrrverandi eiginmaður Kelly Clarkson látinn Lífið Fleiri fréttir Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira