Ryðguð járnfrú Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 18. janúar 2012 20:00
Bíó. The Iron Lady. Leikstjórn: Phyllida Lloyd. Leikarar: Meryl Streep, Jim Broadbent, Anthony Head, Richard E Grant, Olivia Colman, Nicholas Farrell, Alexandra Roach, Harry Lloyd. Það má færa rök fyrir því að Meryl Streep sé ein besta leikkona kvikmyndasögunnar. Hún hefur um langt skeið verið sérstakt eftirlæti bæði bíógesta og kollega sinna, og hún stendur einkar vel að vígi sé verðlaunatölfræði skoðuð. Að Streep leiki þekkta persónu á borð við Margaret Thatcher hljómar því eins og uppskrift að sannkallaðri kvikmyndaveislu. The Iron Lady er hins vegar of laus í reipunum til þess að teljast til kvikmyndalegra stórvirkja. Frammistaða Streep er fyrirsjáanlega óaðfinnanleg og gott betur en það. Það er ótrúlegt að fylgjast með töktunum og málrómnum, og förðunardeildin á sérstakt hrós skilið fyrir að hafa gert allt nema einræktað Thatcher, svo líkar eru þær. Mér finnst það sniðugt að fókusera á hina gömlu og hálfsturluðu Thatcher en ekki á stjórnmálaferil hennar. Járnfrúin er gífurlega umdeild stjórnmálafígúra og ferill hennar verður vafalítið tíundaður í annarri kvikmynd síðar. En í þessari mynd fylgjumst við með brothættri og hrörnandi konu sem sér ofsjónir og rígheldur í draug látins eiginmanns. Sú saga er ein og sér nógu áhugaverð til að réttlæta það að setja stjórnmálasögu Thatcher í annað sæti. En því er ekki haldið nægilega til streitu og eftir stendur kvikmynd sem veit ekki almennilega hvað hún vill vera. Þrátt fyrir þennan stóra galla er myndin að mörgu leyti áhugaverð og Streep hífir hana upp fyrir mörk meðalmennskunnar. Niðurstaða: Ágæt hugmynd en útfærslunni er ábótavant. Streep gerir áhorfið þó vel þess virði.Ath. Þau mistök urðu í Fréttablaðinu í dag að The Iron Lady fékk fjórar stjörnur, í stað þriggja eins og hún átti skilið að mati gagnrýnanda.
Mest lesið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið Þetta þrennt hefði ég viljað vita tvítugur Áskorun Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Lífið Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið Orðrómur um ástir breskra Traitors stjarna Bíó og sjónvarp 50+: Sjúkdómasamkeppnin í matarboðinu Áskorun Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Lífið Skemmtilega söguhornið: Hneykslanlegt að borða með gaffli frekar en puttunum Áskorun Vonlaust að gagnrýna vini sína Lífið Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Lífið Fleiri fréttir Úlfurinn át þá alla Boltamömmur í miðjumoði Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Berrössuð hjón og endurtekið efni Digger grefur sína eigin gröf Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Sjá meira