Ísland vann til markaðsverðlauna UEFA Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 1. desember 2012 11:15
Á árlegri verðlaunaafhendingu UEFA fyrir markaðsmál tengd knattspyrnu, sem fram fór í gærkvöldi í Róm, hlaut Ísland verðlaun fyrir markaðssetningu á Pepsi-deildinni í knattspyrnu. Fimmtán þjóðir kepptu við Ísland í flokknum „Best Sponsorship Activation". Af þessum 15 þjóðum voru þrjár tilnefndar: Ísland, Noregur og Kasakstan. Portúgal fékk sérstök aukaverðlaun í þessum flokki en aðrar þjóðir sem sendu inn sínar umsóknir voru m.a. England, Þýskaland, Holland, Austurríki, Frakkland og Skotland. Fimm aðilar skipuðu dómnefnd UEFA sem ákvarðaði þessi verðlaun og voru þar aðilar úr ýmsum áttum s.s. prófessor í markaðsfræði frá Essec viðskiptaskólanum í París, yfirmaður kostunarmála hjá Heineken og forstjóri Eurosport. „Ástríða fyrir íslenskri knattspyrnu" var heitið á herferðinni og vann Ölgerðin efnið með VERT-markaðsstofu þar sem reynt var að varpa ljósi á hvað það er sem gerir íslenska knattspyrnu einstaka og sérstaða hvers liðs dregin fram. Í fréttatilkynningu frá Knattspyrnusambandi Íslands kemur fram að verðlaunin séu mikill heiður fyrir íslenska knattspyrnu og alla þá aðila sem koma með einhverjum hætti að Pepsi-deildinni, ekki síst félögin í Pepsi-deildum karla og kvenna.Á heimasíðu UEFA má finna upplýsingar um verðlaunaafhendinguna, smellið hérMyndbandið sem fylgdi umsókn KSÍ má sjá með því að smella hér.
Íslenski boltinn Mest lesið Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Enski boltinn Lygileg níu marka veisla í París Fótbolti Þórsarar gætu hætt: „Fyrir hvern erum við að standa í þessu starfi?“ Körfubolti „Stórkostlegur varnarleikur“ í níu marka veislu Fótbolti Uppgjörið: Haukar - Keflavík 86-70 | Haukar unnu sannfærandi sigur og komust yfir Körfubolti Þristur í lokin og Sindri eða Breiðablik í Bónus-deildina Körfubolti Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Enski boltinn Hver verður fljótastur að hlaupa míluna? Sport Arnar Freyr öflugur í evrópskum Íslendingaslag Handbolti Diljá fljót að leggja upp fyrir mikinn Íslandsvin Fótbolti Fleiri fréttir Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Stones rifar seglin hjá City Knattspyrnukona missti fóstur á æfingu: „Þeir björguðu líklega lífi mínu“ Fernandes nálgast stoðsendingametið eftir sigur United Fá leyfi til að leika sér í fríinu Fékk sér tebolla með Ratcliffe Frá út leiktíðina og missir af HM Fernández kom Chelsea í bikarúrslit Vill skrúfa fyrir lekann eftir að rakarinn birti byrjunarliðið Mörkin úr enska: Skaut Arsenal á toppinn og dramatíkin allsráðandi á botninum Salah gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Liverpool Eze skaut Arsenal aftur á toppinn Manchester City tryggði sér farmiða í úrslitaleikinn Þriðji sigur Liverpool í röð Tottenham vann loksins en er enn í fallsæti Fulham vann og Liverpool getur komist upp fyrir Villa Andlát Jota notað sem barefli á leikmenn Liverpool Allt slökkt á Leikvangi ljóssins Hákon hefur bætt sig á öllum sviðum og framlengir við Brentford Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Haaland skaut Manchester City á toppinn Rosenior rekinn frá Chelsea Hársnyrtir Cucurella lak upplýsingum úr herbúðum Chelsea Spila alla leiki á Brúnni og bjóða í botnlausan bröns Sjáðu hrylling Chelsea og stjórann bauna á leikmenn Sjá meira