Mjög troðnir marvaðar mitt í dal Svarfaðar Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir skrifar 6. desember 2012 11:30 Hér liggur skáld eftir Þórarinn Eldjárn.
Bækur. Hér liggur skáld. Þórarinn Eldjárn. Vaka Helgafell Þorleifs þáttur jarlsskálds hefur orðið Þórarni Eldjárn innblástur til ritunar bókarinnar Hér liggur skáld. Fyrir þau sem ekki bera kennsl á þann Íslendingaþátt skal sagt að hann er nátengdur Svarfdæla sögu og fjallar um Þorleif, sem er bróðir Yngvildar fagurkinnar, einn Ásgeirssona. Í Svarfdæla sögu er Þorleifur ekki nálægt því jafn eftirminnileg persóna og Yngvildur systir hans, en hlutverk hans er þó ekki lítið, þar sem hann drepur t.d. ódáminn Klaufa í félagi við bróður sinn. Þorleifur gufar þó hálfvegis upp úr sögunni en skýtur upp kollinum í þætti þeim er við hann er kenndur. Þorleifs þáttur jarlsskálds er örstuttur, en hann hefur Þórarinn nýtt til þess að draga upp helstu atriði bókar sinnar. Hann fyllir svo í göt og eyður af miklu listfengi, m.a. með atburðum Svarfdæla sögu - og vitaskuld eigin óþrjótandi skáldgáfu. Frásögnin af Hallbirni hala rammar inn söguna, en tvö hundruð árum eftir víg Þorleifs situr sá sauðamaður við haug skáldsins á Þingvöllum og óskar sér þess að verða sjálfur skáld. Hann reynir að yrkja um Þorleif, sem bregst við kallinu, ljóðar á Hallbjörn og gefur honum þannig rödd. Bergmál þessara tveggja skálda má síðan heyra í skáldskap þess þriðja, Þórarins Eldjárn. Kynngi skáldskaparins er Þórarni skiljanlega hugleikið viðfangsefni í Hér liggur skáld. Sagan af því hvernig Þorleifur hlaut sitt viðurnefni er áhrifamikil og ansi blóðug. Líkt og margir skáldbræður hans fór hann utan að flytja kvæði sín konungi en varð fyrir ógurlegri árás Hákonar Hlaðajarls sem þekktur var fyrir "mannillsku og guðníðingsskap" og myrti menn Þorleifs á hroðalegan hátt. Kraftakveðskap notar Þorleifur til þess að ná sér niður á þeim arma hundi, en síðar mætir hann sjálfur þeim örlögum sem honum voru ráðin strax í frumbernsku. Engum manni er betur treystandi til þess en Þórarni Eldjárn að yrkja í orðastað fornra skálda og skrifa af þeim sögur. Textinn er ákaflega vandaður, það er mikill húmor í frásögninni og enn fremur gróteskar lýsingar. Þarna eru firn mikil, iður falla út, hausar fjúka og orðstír sem deyr aldregi. Allt sem prýða má góða Íslendingasögu og ég leyfi mér að fullyrða að sagnanördar munu falla í stafi yfir þessari bók. Og lýkur hér að segja frá henni. Niðurstaða: Ný Íslendingasaga eftir einn okkar albestu höfunda. Áhrifamikil og blóðug, eins og slíkar sögur eiga að vera.
Gagnrýni Mest lesið Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur Lífið Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Lífið Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Lífið Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Lífið Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Lífið Fleiri fréttir Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Enginn venjulegur sjötugur maður Langdregnir brandarar stoppa ekki stuðið Suddalega slappt Stjörnustríðsslor Plastgangsterar: Þegar Herra Hnetusmjör týndist í Laugardalshöllinni Lítið kjöt á beinum rándýrsins Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Sjá meira