Óþekktur konungur í Afríku var auðugasti maður sögunnar 16. október 2012 10:18
Auðugasti maður sögunnar, að teknu tilliti til verðbólgu, var Mansa Musa I, nær óþekktur konungur í Vestur Afríkuríkinu Malain á þrettándu öld. Auðæfi Musa, sem voru upp á 400 milljarða dollara eða hátt í 50 þúsund milljarða kr., byggðust á því að á þessum tíma framleiddi konungsríki hans helminginn af öllu salti sem notað var í heiminum og stóran hluta af gullinu. Konungsríki Mansa Musa náði yfir landsvæðið þar sem nú eru löndin Ghana og Malí. Musa var heittrúaður múslimi og hann notaði auðæfi sín m.a. til að byggja margar stórfenglegar moskur og raunar standa sumar þeirra enn. Þetta kemur fram á nýjum lista vefsíðunnar Celebrity Net Worth´s yfir 25 auðugustu menn sögunnar. Aðeins þrír einstaklingar eru á lífi á þessum lista en það eru Bill Gates, Warren Buffett og Carlos Slim. Engin kona er á listanum en 14 Bandaríkjamenn. Þar er að finna nöfn á borð við Rockefeller, Rothschild og Nikulás II Rússakeisara. Raunar er Rothschild fjölskyldan í heild í öðru sæti á listanum en auðæfi hennar eru talin nema 350 milljörðum dollara í dag. Í þriðja sæti kemur svo bandaríski iðnaðarjöfurinn Andrew Carnegie sem uppi var á seinni hluta 19. aldarinnar en auðæfi hans námu 310 milljörðum dollara.
Mest lesið Russ DeLeon eignast Höfða Lodge Viðskipti innlent Draumurinn um hvítu jakkafötin og Ferrari á bílaplaninu Atvinnulíf Engin svör að fá sem skýra „rán um hábjartan dag“ Neytendur Selja sérbakaðar bollur í útivistarvöruverslun Viðskipti innlent Fá veglegan styrk og innleiða Bara tala í alla framhaldsskóla Viðskipti innlent Stjórn Íslandsbanka vill greiða tólf milljarða í arð Viðskipti innlent Valhöll seld en óvíst með framhaldið Viðskipti innlent Neita að taka fyrir umsókn um nýja kynslóð flensusprautu Viðskipti erlent Framsækin og ört vaxandi rafmagnsverkfræðistofa Framúrskarandi fyrirtæki Mega ekki kenna haframjólk við mjólk Viðskipti erlent Fleiri fréttir Skipta út stjórnarformanni sem sendi Epstein pyntingamyndband Gera Wolt-sendla starfsmenn en á óhefðbundnum kjörum Neita að taka fyrir umsókn um nýja kynslóð flensusprautu Mega ekki kenna haframjólk við mjólk Auglýsingarnar súrari og skrýtnari en húmorinn í fyrirrúmi Allar auglýsingar Ofurskálarinnar á einum stað Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira