Háhyrningar stela senunni 17. október 2012 10:17 Dögg Mósesdóttir tók þá ákvörðun að færa stuttmyndahátíðina Northern Wave. Hátíðin verður haldin næsta nóvember á næsta ári.
Það kom í ljós á síðustu hátíð að öll gisting í bænum yrði uppbókuð á sama tíma að ári. Ég var því meðvituð um að ég gæti mögulega þurft að færa hátíðina," segir Dögg Mósesdóttir, framkvæmdastjóri alþjóðlegu stuttmyndahátíðarinnar Northern Wave. Hátíðin hefur verið haldin í mars í Grundarfirði síðustu fimm ár en háhyrningar sem hafast við í firðinum á þessum tíma árs hafa nú stolið senunni. "Háhyrningar hafa leitað inn í fjörðinn á þessum tíma síðustu ár og þetta hefur vakið athygli ferðamanna sem koma í bæinn til að fylgjast með hvölunum. Heimamenn hafa grínast með að nú fari fram Northern Whale Festival í bænum í stað Northern Wave." Dögg tók ákvörðun um að færa hátíðina fyrir stuttu þegar henni fóru að berast fyrir spurnir um skilafrest mynda. Líklegt er að hátíðinverði næst í byrjun nóvember á næsta ári. "Þetta gæti verið ágæt breyting því veðrið er oft miklu betra í nóvember en í mars. Við höfum oft lent í stormviðri á meðan á hátíðinni stendur og einnig hefur verið illfært vestur." Rökkurdagar, menningarhátíð Grundarfjarðar, fara fram í nóvember ár hvert og þætti Dögg gaman að tengja þessa tvo viðburði saman á einhvern hátt. Dögg eignaðist sitt fyrsta barn aðeins þremur vikum eftir að síðustu hátíð lauk og viðurkennir að það sé kærkomið að fá lengri tíma til að skipuleggja næstu hátíð á meðan dóttirin er svo ung. "Jú, það er ekki verra að fá lengri tíma til að skipuleggja næstu hátíð." -sm
Mest lesið Nígerískt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju Lífið Nígerísk hjón reisa glerkastala í Kjós og flytja inn tonn af blómum til að gifta sig aftur Lífið Hver er Endakallinn frá Ibiza? Lífið Fyrrverandi eiginmaður Kelly Clarkson látinn Lífið „Magnað innra ferðalag“ að horfast í augu við saklausa barnið í sér Lífið Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Lífið samstarf Hvers vegna fær Innrásin frá Mars núll í einkunn? Lífið McConaughey glutraði niður tækifærinu í Titanic Lífið Hver dáleiðsla er spennandi og ófyrirsjáanlegt ferðalag Lífið samstarf Orðin vön ferðamönnum í garðinum og fagnar komu þeirra Lífið Fleiri fréttir Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira