Sveiflast milli léttleika og dramatíkur fridrikab skrifar 5. október 2012 13:59 Hjördís Lilja ásamt Aðalheiði Halldórsdóttur og Hannesi Þór Egilssyni í verkinu It is not a metaphor sem samið er við tónlist Johns Cage. "
Þetta eru mjög ólík verk," segir Hjördís Lilja Örnólfsdóttir, einn dansara Íslenska dansflokksins, sem dansar í báðum verkunum. "It is not a metaphor er létt og skemmtilegt en um leið skiptir hver hreyfing máli. Við dönsum bara þrjú í því en í Hel haldi sínu dansar allur flokkurinn og það er mun dramatískara, má næstum kalla það óperudans. Bæði verkin eru mjög vel samin og sjónræn og ég get alveg lofað sterkri upplifun í kvöld." Bæði verkin voru samin sérstaklega fyrir dansflokkinn og höfundarnir stjórnuðu uppsetningunni sjálfir. Jérôme leitar innblásturs í norrænu goðafræðinni og fjallar verkið um sköpun og endalok heimsins út frá gömlu norrænu trúarbrögðunum. Auk þess að semja dansinn hannar Jérôme leikmynd og búninga. Tónlist verksins er Vier letzte Lieder eða Fjögur síðustu ljóð eftir Richard Strauss sem fjalla um árstíðirnar og hina eilífu hringrás lífs og dauða. Einnig hljómar tónlist Önnu Þorvaldsdóttur í verkinu. It is not a metaphor eftir Cameron Corbett sækir innblástur í hin ólíku þemu og listabylgjur sem komu fram á tuttugustu öldinni. Tónlistin er í höndum Tinnu Þorsteinsdóttur píanóleikara en hún flytur tónlist John Cage á "prepared" píanó. Dansflokkurinn er skipaður tíu dönsurum, fimm konum og fimm körlum. Auk þess dansa tveir gestadansarar í Hel haldi sínu. Næsta sýning verður þann 11. október en aðeins sex sýningar verða á verkunum.
Mest lesið Nígerísk hjón reisa glerkastala í Kjós og flytja inn tonn af blómum til að gifta sig aftur Lífið Nígerískt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju Lífið Hver er Endakallinn frá Ibiza? Lífið Fyrrverandi eiginmaður Kelly Clarkson látinn Lífið Myndaveisla: Tröllatrukkur og Rolls Royce á svæðinu þegar hjónin gengu út Lífið „Magnað innra ferðalag“ að horfast í augu við saklausa barnið í sér Lífið Bay segir skilið við Smith Lífið Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Lífið samstarf Hver dáleiðsla er spennandi og ófyrirsjáanlegt ferðalag Lífið samstarf Hvers vegna fær Innrásin frá Mars núll í einkunn? Lífið Fleiri fréttir Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira