Fantasíur rjúka út 31. ágúst 2012 10:16 "
Viðtökur Fantasía hafa komið okkur ánægjulega á óvart en ég held að íslenskar konur hafi langað í bók af þessu tagi lengi," segir Egill Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Forlagsins, en fyrsta upplag, 2.500 eintök, er uppselt hjá útgefanda og annað jafn stórt upplag er í prentun. "Til að mæta þessari eftirspurn erum við að hraða útgáfu rafbókarinnar sem kemur út í dag [í gær]. Við höfum aldrei fylgt prentaðri bók jafn hratt eftir með rafbók þannig að þetta eru tímamót hjá okkur." Í Fantasíum eru birtar kynlífsfantasíur sem ritstjóri bókarinnar, Hildur Sverrisdóttir, valdi úr fjölda aðsendra sagna. Egill segir velgengni bókarinnar einkum byggja á því hversu góðar sögurnar eru og hversu vel bókinni er ritstýrt. "Íslenskar konur sendu frábært efni sem Hildur vann svo úr. Auðvitað vekur efni af þessu tagi umræðu og áhugi en forsendan fyrir sölunni er að bókin sé góð." Egill telur ekki beint samband á milli bókarinnar og umræðu sem metsölubókin Fifty Shades of Grey hefur vakið en hún kemur raunar út í íslenskri þýðingu hjá Forlaginu eftir helgi. "Þær eru vissulega skyldar þannig að þær eru erótískt efni og erótískt efni er það sem allt snýst um í bókabransanum í dag."
Menning Mest lesið Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ Lífið Sækir um sem kærasti með nýju húðflúri Bíó og sjónvarp Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Lífið Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Lífið „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Tíska og hönnun „Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna“ Lífið Frá jólamörkuðum Evrópu til ævintýra í Asíu og Afríku Lífið samstarf Hefja framleiðslu á framhaldsmynd um Michael Jackson Bíó og sjónvarp Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu Lífið Fleiri fréttir Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira