Haffjarðará: Flott veiði og mikið af fiski í ánni Trausti Hafliðason skrifar 22. ágúst 2012 19:38 Lax stekkur í Haffjarðará. Mynd / Jökull Snæbjarnarson
Veiði í Haffjarðará hefur gengið ótrúlega vel í sumar miðað við þá þurrkatíð og lægð sem almennt hefur verið í laxveiðinni. Einar Sigfússon, eigandi árinnar, segir í samtali við Veiðivísi að síðasti sólarhringur hafi gefið 12 laxa og áin sé að detta í 1.000 laxa í heildina. "Þetta hefur verið mjög gott hjá okkur í sumar, það er eiginlega ekki hægt að segja annað," segir Einar. "Það er mikið af laxi í ánni og þeir eru enn að týnast inn. Það komu flóð hérna fyrir svona tíu dögum og þá dalaði veiðin aðeins enda áin illveiðanleg í nokkra daga en síðan hefur þetta aftur tekið kipp upp á við. Núna sjáum við þónokkuð af stórlaxi, svona á bilinu fjögur til sex kíló en hann getur verið tregur að taka - svona haustfiskur." Einar segir erfitt að skýra hvers vegna veiðin hafi gengið svona vel í Haffjarðará á meðan flestar aðrar ár eru í lægð. Hins vegar telji hann líklegt að kenna megi köldu voru í fyrra um það hversu veiðin hefur í heildina verið dræm á landinu öllu. "Ég reikna með að við endum í þetta 1.100 til 1.200 löxum," segir Einar. Ef það gengur eftir verður veiðin í sumar ein sú besta frá upphafi í Haffjarðará því frá árinu 1974 hefur hún einungis sex sinnum farið yfir 1.100 laxa. Árið 2008 var metár, en þá veiddust 2.010 laxar í ánni. Þó heimilt sé að veiða átta stangir er aðeins veitt á sex í Haffjarðará. Einar segir að þannig hafi það verið í sextán ár og þannig verði það áfram enda gefist vel. Uppselt er í ána á hverju ári og sömu menn koma ár eftir ár enda hefur áin nokkra sérstöðu á Íslandi. Í henni hefur aldrei verið stunduð fiskrækt og eingöngu treyst á náttúrulegt klak til viðhalds stofns og veiði. "Við höfum hjálpað ánni með öðrum hætti en að sleppa í hana seiðum. Við höfum lagt þónokkuð á okkur við halda bæði mink og sel í skefjum," segir Einar. Glöggir lesendur hafa væntanlega tekið eftir því að Einar var í upphafi titlaður sem eigandi árinnar. Það helgast af því að veiðirétturinn í Haffjarðará fylgir ekki landi heldur er hann sérmetin fasteign.trausti@frettabladid.is
Stangveiði Mest lesið Veiðitölur úr Veiðivötnum Veiði Skemmtileg dagskrá fyrir unga veiðimenn Veiði Bleikjan að taka um allt vatn Veiði Vikulegar veiðitölur úr laxveiðiánum Veiði Nýjar veiðitölur úr laxveiðiánum Veiði 1.004 fiska vika í Veiðivötnum Veiði Hlaupvídd 20 líka hentug á rjúpu Veiði Tröllvaxin bleikja úr Úlfljótsvatni Veiði Stóra Laxá 1-2 opnuð með stæl Veiði Lokakvöld Kvennadeildar SVFR annað kvöld Veiði