Birgir á meðal þeirra efstu í Danmörku | -5 þegar keppni er hálfnuð 16. ágúst 2012 14:35 Birgir Leifur Hafþórsson. seth
Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, byrjar vel á Áskorendamótaröðinni í golfi, en keppt er í Horsens í Danmörku að þessu sinni. Birgir er á meðal efstu manna þegar þetta er skrifað en hann er samtals á 5 höggum undir pari en margir eiga eftir að ljúka leik í dag. Áskorendamótaröðin er næst sterkasta atvinnumótaröð Evrópu en Evrópumótaröðin er sú sterkasta. Birgir lék fyrsta hringinn í gær á 69 höggum eða 3 höggum undir pari vallar. Hann var á 70 höggum í dag eða 2 höggum undir pari. Alls hefur hann fengið 8 fugla (-1), 22 pör, 5 skolla (+1) og 1 örn (-2). Sænski kylfingurinn Klas Eriksson er á besta skorinu það sem af er, -12 samtals, en hann setti vallarmet á fyrsta hringnum þar sem hann lék á 62 höggum eða -10. Birgir er í þriðja sæti á -5. Þriðji keppnisdagur fer fram á morgun og keppni lýkur á laugardaginn.
Golf Mest lesið Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Missir af Ólympíuleikunum af því að móður hennar var rænt Sport Arnór fékk allt greitt frá Rússunum og saknar landsliðsins Fótbolti JD Vance með þrjú hundruð öryggisverði á Ólympíuleikunum Sport Casemiro í viðtali við Sýn Sport: „Hann veit hvernig stuðningsmenn vilja spila“ Enski boltinn Fær ekki að keppa á Ólympíuleikunum af því að hún er kona Sport Fyrrum leikmaður Aftureldingar og Fram á forsíðu fræga sundfatablaðsins Fótbolti Útskrifast úr Verzló og heldur út í atvinnumennsku: „Rétt skref fyrir mig“ Handbolti Ólympíumeistarinn með skilaboð til Trump: „Ég er ekki trans. Ég er kona“ Sport Segir fótboltasérfræðinga bera ábyrgð Enski boltinn Fleiri fréttir LIV fær heimslistastig þótt mótaröðin uppfylli ekki skilyrði LIV-stjörnur þekkjast ekki boð PGA-manna Koepka snýr aftur og öðrum LIV-stjörnum býðst að fylgja honum Kylfingur tók áhættuna og upplifði versta golfdag lífsins McIlroy miður sín yfir ummælum áhorfenda um dóttur hans Efnilegur kylfingur meðal þeirra sem létust í brunanum í Sviss Sjá meira