Veiðibúðir Lax-ár á Grænlandi tilbúnar 31. júlí 2012 10:53 Stórkostleg náttúra og frábær veiði gerir veiðibúðir í Grænlandi afar girnilegan kost til veiða! Lax-a.is
Verið er að leggja lokahönd á síðasta húsið í veiðibúðum Lax-ár í Grænlandi en verkið hefur dregist nokkuð. Af hreindýraveiðum á svæðinu er það helst að frétta að þeir sem hafa farið í sumar hafa allir veitt sín dýr fljótt og örugglega og gert mjög góða bleikjuveiði í framhaldinu, segir á lax-a.is. Búðirnar munu saman standa af 16 húsum, af þeim eru eitt baðhús með heitu og köldu vatni, salernisaðstaða og sturtur og mataraðstaða undir þaki. Veiðibúðirnar verða staðsettar í villtri náttúru Grænlands og á besta stað fyrir bæði hreindýra og bleikjuveiði. Margar ár og dalir eru í nágrenni veiðibúðanna en bleikjurnar í Grænlandi geta farið í 10 pundin en algengast er að þær séu frá 2-7 pund að stærð. Veitt er að vild og ráða menn því hvort þeir taka með sér aflan eða sleppa en sagan segir að varla sé hægt að fá betri fisk á grillið á kvöldin en grænlenska bleikju. Veiðibúðirnar verða þær einu á Grænlandi og eru staðsettar nálægt bleikjuveiðiá þar sem veiðimenn geta skroppið á kvöldin og náð sér í eina bleikju til að skella á grillið eða njóta óspilltri nátturunni allt í kring. Búðirnar eru hannaðar með það í huga að gestir og veiðimenn geta notið þess að vera í óbyggðum Grænlands. Ekki er um að ræða fyrsta flokks lúxus heldur búðir sem munu sjá gestum fyrir öllum nauðsynjum í veiðiferðum; þægilegt rúm, útisturtur og salerni. svavar@frettabladid.is
Stangveiði Mest lesið Veiðitölur úr Veiðivötnum Veiði Skemmtileg dagskrá fyrir unga veiðimenn Veiði Bleikjan að taka um allt vatn Veiði Vikulegar veiðitölur úr laxveiðiánum Veiði Nýjar veiðitölur úr laxveiðiánum Veiði 1.004 fiska vika í Veiðivötnum Veiði Hlaupvídd 20 líka hentug á rjúpu Veiði Tröllvaxin bleikja úr Úlfljótsvatni Veiði Stóra Laxá 1-2 opnuð með stæl Veiði Lokakvöld Kvennadeildar SVFR annað kvöld Veiði