Þúsund lítra olíutankur á botni Mývatns 13. maí 2012 17:49 Í nóvember árið 2004 hætti Kísiliðjan starfsemi.
Þúsund lítra olíutankur liggur í Ytriflóa Mývatns. Þetta kemur fram í verndaráætlun Mývatns og Laxár. Akureyri Vikublað greinir frá þessu. Í blaðinu kemur fram að tankurinn hafi fallið af dráttarbáti Kísiliðjunnar síðasta sumarið sem verksmiðjan starfaði, en það var árið 2004. Talið er að tankurinn sé fullur af olíu. Ef ekkert verður að gert er ljóst að umhverfisslys er í uppsiglingu því Mývatnssvæðið er sérlega viðkvæmt en þar eru búsvæði margra fugla- og fisktegunda. Í Akureyri Vikublaði en rætt við Árna Einarsson, líffræðing hjá Náttúrurannsóknastöðinni við Mývatn. Þar segir: „Samkvæmt upplýsingum Árna varð óhapp síðustu dagana sem dráttarbátur Kísiliðjunnar í Mývatnssveit var starfræktur. Munaði minnstu að báturinn sykki og í látunum rann tankurinn í vatnið. Starfsmenn urðu þess ekki varir fyrr en þeir sigldu í land. Ótækt var talið að liggja með tifandi mengunartímasprengju í vatninu og var leitað nokkrum sinnum sumarið 2004 en án árangurs. Virðist sem málið hafi ætíð farið furðu hljótt." „Talið er að tankurinn liggi á svæði austan Slútness. Um tíma stóð bauja þar sem starfsmenn töldu líklegast að tankurinn hefði horfið en baujan er löngu horfin í dag. Árni segir erfitt að kalla menn til ábyrgðar þar sem átta ár eru liðin síðan Kísiliðjan hætti störfum." Í Akureyri Vikublaði kemur fram að Árni hafi ekki gefið upp vonina um að tankurinn finnist. Bindur hann vonir um að í sumar verði hægt að leita að honum með dvergkafbáti eða úr loft. Kísiliðjan hætti starfsemi í nóvember árið 2004, eins og lesa má um hér.
Stangveiði Mest lesið Stórlaxahrota hjá síðasta holli í Víðidalsá Veiði Vefsalan komin í gang hjá Lax-Á Veiði 594 laxar veiddir á einni viku Veiði 60 sm bleikja veiddist við Efri Brú Veiði Uggur í veiðimönnum vegna breytinga í Þingvallavatni Veiði 100 laxa dagar í Ytri Rangá Veiði Barking Heads veiðihundaprófið var haldið um helgina Veiði Ný veiðibúð í Árbænum Veiði Leynivopnið í vatnavöxtum Veiði Erfitt að fá maðka vegna hlýinda Veiði