2 vikur í opnun! Karl Lúðvíksson skrifar 20. mars 2012 10:19
Nú eru aðeins rétt rúmar tvær vikur í opnun margra vinsælla veiðivatna og má sjá lista yfir þau hér fyrir neðan. Með hækkandi sól eykst spenningurinn hjá veiðimönnum og margir langt komnir með að hnýta flugur fyrir sumarið. Vinsælustu vorveiðivötnin hafa verið Vífilsstaðavatn og Meðalfellsvatn. Þegar á að veiða silung í vötnum að vori er oft gott að huga að hitastigi. Snillingarnir vilja meina að ef að lofthiti er 8° eða meira þá er það nægjanlegt til að bleikjan taki við sér og fari á stjá. Þetta hefur sannað sig vel t.d. í Vífilsstaðavatni en 1. apríl í fyrra var lofthiti um 3° og lítið sem ekkert gekk en 1. apríl 2009 var lofthiti um 10° og þá gekk veiðimönnum mun betur að veiða. Urriði og sjóbirtingur eru ekki eins viðkvæmir fyrir lofthitanum og eru frekar á hreyfingu í lægra hitastigi, enda hefur það sýnst sig t.d. í Meðalfellsvatni að veiðimenn hafa verið að fá fína veiði þar þrátt fyrir kulda. Veiðimenn eru öllu jöfnu miklir bjartsýnismenn og vonum við að veðurguðirnir verði okkur hliðhollir og gefi okkur gott veiðiveður 1. apríl nk. Meira á https://veidikortid.is/Pages/16?NewsID=826
Stangveiði Mest lesið Af stórlöxum sumarsins Veiði Veiðimenn farnir að kíkja á Skagaheiði Veiði Lokatalan úr Laxá á Ásum 1006 laxar Veiði Veiðibúðin við Lækinn skiptir um eigendur Veiði Vatnsmikil saga úr Geirlandsá Veiði Styttist í rjúpnaveiðina Veiði Laxinn mættur í Lýsuna Veiði 126 laxa holl í Langá á Mýrum Veiði Nils Folmer með nýja liti í Metalica Veiði 110 sm lax úr Vatnsdalsá Veiði