Rislágir karlar Teitur Guðmundsson skrifar 9. október 2012 06:00 Þegar maður veltir fyrir sér karlmennsku og því sem hana skilgreinir þá fær hver og einn eflaust einhverja mynd upp í hugann. Sumir sjá fyrir sér sterkan, stæltan, jafnvel vel hærðan, eða vaxborinn hárlausan karlmann sem lætur engan bilbug á sér finna. Þá eru aðrir sem sjá fyrir sér föðurlegan, ábyrgan og traustan aðila sem tekur af skarið, veit sínu viti og lætur ekki hlaupa með sig í gönur. Svona mætti lengi telja í stereotýpiseringu, það sem þó flestir tengja við karlmennsku, að minnsta kosti þeir sem eru karlkyns, er hvort þeim rísi hold eður ei. Þetta grundvallaratriði virðist samofið þessum skilningi karlanna og því ákaflega mikilvægt og ekki síður pínlegt ef það bregst í hita leiksins, sem aftur leiðir til efasemda um eigin getu og hefur áhrif á vellíðan einstaklingins sem á í hlut. Það er vel þekkt að risvandamál eru algengust hjá eldri karlmönnum, en þau geta komið fyrir á hvaða aldri sem er. Ristruflun er hins vegar samkvæmt skilgreiningu endurtekinn og viðvarandi vandi og er slíkt þekkt hjá karlmönnum frá fertugu, þó í minni mæli sé, en líklegra eftir því sem árin líða. Rannsóknir hafa sýnt að allt að 40% karla um fertugt glíma við slíkt og eykst tíðnin með aldri í allt að 70% hjá körlum um sjötugt. Ekki má rugla saman breyttri kynhvöt, vandamálum með sáðlát annars vegar og ristruflun hins vegar. En sú síðastnefnda byggir fyrst og fremst á vanda við að fá stinningu og að halda henni. Orsakirnar fyrir slíkum vanda eru fjölmargar, en eðli vandans liggur fyrst og fremst í blóðflæðiröskun og röskuna í taugum. Krónískir sjúkdómar eru hér fremstir í flokki eins og hjarta- og æðasjúkdómar, hár blóðþrýstingur, sykursýki, nýrnasjúkdómar, taugasjúkdómar og krabbamein svo eitthvað sé nefnt. Þá eru aðgerðir sem hafa áhrif eins og við meinum í blöðru og blöðruhálskirtli. Fjöldamörg lyf hafa einnig þessi neikvæðu áhrif, eins og ákveðnar tegundir blóðþrýstilyfja, þunglyndislyf og róandi lyf. Þá má ekki gleyma lífsstílnum, en þekkt er að þeir sem reykja eru að minnsta kosti tvöfalt líklegri til að þróa ristruflanir. Ofneysla áfengis og ofþyngd hafa einnig töluverð áhrif. Þá hefur verið sýnt fram á að þeir sem hreyfa sig reglubundið og stunda heilbrigðan lífsstíl fá síður þessi vandamál, með þeirri áhugaverðu undantekningu þó að þeir sem hjóla mikið virðast eiga frekar við risvandamál að stríða. Mjög mikilvægt er að hlúa að hinum andlega þætti sem byggir á jafnvægi og vellíðan, en ljóst er að streita, álag og lélegt sjálfsmat hefur gríðarleg áhrif á karlmennskuna á neikvæðan hátt og getur þurft að koma til meðferðar vegna slíkra vandamála. Þeir sem eru rislágir og finna til þessara einkenna eiga þó nokkurra kosta völ og er algengast að reynd séu svokölluð stinningarlyf, sem auka blóðflæði og hafa þannig jákvæð áhrif, annað hvort í töfluformi eða sem sprauta. Aðrar aðferðir eru sértækari og krefjast meiri inngripa af hálfu þvagfæralækna. Aðalatriði í þessu samhengi er að ræða vandann bæði við maka sinn og lækni svo hægt sé að greina vandann sem fyrst og fá viðhlítandi meðferð. Það er því afar mikilvægt að hreyfa sig reglubundið, borða hollan mat, reykja ekki, drekka áfengi í hófi, nota sem minnst af lyfjum og vera í andlegu jafnvægi til þess að halda reisn! Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Teitur Guðmundsson Mest lesið Afsláttur fyrir erlenda glæpamenn Anton Sveinn McKee Skoðun Launin mín eru ekki vandamálið. Hættu að kenna fátækum um mistök þín Ian McDonald Skoðun Stærsti foss jarðar er á landgrunni Íslands Júlíus Valsson Skoðun Um tæknirisana og stjórnlausa bruðlið Kristinn Jón Ólafsson Skoðun Vinnum að hag sjúklinga – og förum rétt með staðreyndir Aðalsteinn Arnarson,Kristján Jón Jónatansson Skoðun Stórslys á Suðurlandsbraut Lárus Bl. Sigurðsson Skoðun Góð áminning um sjálfsögð réttindi Helga Rósa Másdóttir,Magnús Þór Jónsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Hamingjan er ekki tilviljun, hún er afleiðing Elliði Vignisson Skoðun „Verður Guggan áfram gul?“ – hvað ætlar ráðherra að gera við Stykkishólm? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Öfugir hvatar hlutdeildarlána Sindri Pálmason Skoðun
Vinnum að hag sjúklinga – og förum rétt með staðreyndir Aðalsteinn Arnarson,Kristján Jón Jónatansson Skoðun
Góð áminning um sjálfsögð réttindi Helga Rósa Másdóttir,Magnús Þór Jónsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun
„Verður Guggan áfram gul?“ – hvað ætlar ráðherra að gera við Stykkishólm? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun
Vinnum að hag sjúklinga – og förum rétt með staðreyndir Aðalsteinn Arnarson,Kristján Jón Jónatansson Skoðun
Góð áminning um sjálfsögð réttindi Helga Rósa Másdóttir,Magnús Þór Jónsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun
„Verður Guggan áfram gul?“ – hvað ætlar ráðherra að gera við Stykkishólm? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun