Búðu til jólakort með mynd á netinu 28. nóvember 2011 11:00 Að sögn Þórðar eru persónulegar myndir á striga, myndabækur og myndadagatöl mjög vinsæl. mynd/gva
Við bjóðum upp á fjölbreytt úrval af gjafavöru sem hægt er að merkja á persónulegan hátt með til dæmis myndum af fólki, viðburðum eða hverju því sem fólk telur að veiti ánægju þeim sem það vill gleðja," segir Þórður Mar Sigurðsson, framkvæmdastjóri Samskipta. Hann segir persónulegar myndir á striga, eins og af börnum, mjög vinsælar. „Það er hægt að prenta mjög stórar myndir á striga en algengasta stærðin er 30x40 cm. Annars eru nánast engin takmörk á stærðinni. Þessar myndir eru mjög vinsælar til jólagjafa, eins og til ömmu og afa og fólk vill gjarnan eiga slíkar myndir af börnunum sínum." Gjafavaran hjá Samskiptum er einstaklega skemmtileg, bæði til tækifærisgjafa en ekki síður til jólagjafa. „Það gleður mömmur og ömmur sérstaklega að fá kerti með mynd af barninu eða barnabarninu sínu. Þær tíma bara yfirleitt ekki að kveikja á því," segir Þórður Mar og brosir. „Það er miklu skemmtilegra fyrir fjölskylduna að púsla saman mynd af einhverjum fjölskyldumeðlim heldur en landslagi. Þá má ekki gleyma myndadagatalinu sem alltaf slær í gegn." Samskipti er líka með segulmottur á ísskápinn. „Það er um að gera að nota hugmyndaflugið til að skreyta þær með myndum, skemmtilegum texta eða nánast hverju sem er. Mig langar einnig að minnast á myndabækurnar sem njóta mikilla vinsælda. Fólk notar þær oft til að minna sig á merka viðburði í lífi sínu eins til dæmis annáll ársins 2011, sumarið 2011, brúðkaupið 2011 eða verslunarmannahelgin 2011."Samskipti býður upp á ýmsar vörur til að prenta myndir á.Þórður hvetur fólk til að fylgjast vel með vef Samskipta, samskipti.is, á næstunni. Fyrirtækið sé í stöðugri þróun og uppfæri vefinn reglulega og bjóði þá upp á nýjar vörur og þjónustu.
Jólafréttir Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Nýr iX3: Tæknibomba sem kann gamla BMW-takta EX60: Sumarást eða samband til frambúðar Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Nýr kafli hafinn hjá NOMY Ert þú með hugmynd sem gæti bætt heilsu fólks? Sjá meira