Heildarútlit í eldhúsið 14. september 2011 09:30 Ragnar Hermannsson, rekstarstjóri Rönning, segir hönnunarlínurnar frá Gorenje henta fólki sem vilji heildarútlit í eldhúsið. Mynd/Anton
Ora Ito White-línan fæst hjá Rönning. Rönning heimilistæki starfrækir þrjár verslanir á landinu, í Skútuvogi í Reykjavík, á Akureyri og á Reyðarfirði. Hjá Rönning er áhersla lögð á heildarþjónustu við viðskiptavini. Við seljum tvö vörumerki í heimilistækjum hjá Rönning, Fagor og Gorenje," útskýrir Ragnar Hermannsson, rekstrarstjóri Rönning heimilistækja í Skútuvogi. „Það er skemmtileg saga á bak við Fagor-fyrirtækið en það var stofnað af presti í Baskahéraðinu á Spáni. Hann safnaði samskotum til að stofna fyrirtæki í héraðinu sem framleiddi eitthvað sem íbúarnir þyrftu á að halda. Í dag eru Fagor-heimilistækin seld um allan heim," segir Ragnar. Öll eldunartæki hjá Rönning eru frá Gorenje, rótgrónu fyrirtæki sem leggur áherslu á gæði. „Gorenje var stofnað á sjötta áratugnum og er í Slóveníu. Það framleiðir öll sín heimilistæki á sama stað, ólíkt mörgum fyrirtækjum sem dreifa framleiðslunni eftir því hvað þau þurfa að borga fyrir vinnuafl í hverju landi," segir Ragnar, en Gorenje hefur einnig unnið með þekktum hönnuðum við framleiðslu heimilistækjanna. „Gorenje hefur það fram yfir aðra framleiðendur. Fyrirtækið hefur meðal annars unnið með ítölsku hönnunarstofunni Pininfarina, en sú stofa hefur hannað bíla fyrir Ferrari. Línan þeirra er heildstæð og falleg en Rönning er eina verslunin hér á landi með þá línu," segir Ragnar. Þá er Gorenje einnig í samstarfi við franska hönnuðinn Ora-Ito og fást tvær línur heimilistækja eftir hann hjá Rönning.Gorenje er í samstarfi við virta hönnuði um útlit á heimilistækjum eins og Ora Ito og Pininfarina.„Hönnunarlínurnar henta fólki vel sem er að leita að öðruvísi útlit í eldhúsinu. Fólk horfir meira í heildstæðar línur í dag frekar en einstök tæki. Við erum einnig með góða samninga við þjónustuverkstæði og sjáum sjálf um alla varahluti í öll tæki í hverri línu," segir Ragnar og leggur áherslu á góða þjónustu við viðskiptavini. „Okkar mottó er að selja fólki það sem það vill en ekki eitthvað sem það hefur enga þörf fyrir. Við seljum þér ekki ofn með átta eða tíu kerfum á, þegar þú notar bara þrjú eða fjögur," segir Ragnar. Fyrirtækið Johann Rönning var stofnað árið 1933 og Rönning heimilistæki árið 1987. Ragnar segir starfsfólk Rönning fylgjast vel með og reglulega bætist nýjar línur í vöruúrvalið. „Við erum alltaf með augun opin fyrir nýjungum. ATAG er til að mynda nýtt merki á markaðnum sem er væntanlegt í Rönning. Sú lína er með mjög sérstöku og skemmtilegu útliti og henni fylgir átta ára ábyrgð á varahlutum séu fjórar vörur úr línunni keyptar. Um áramótin koma einnig tvær nýjar línur frá Gorenje þar sem meðal annars verður hægt að fá ofn með snjallsímaviðmóti. Þá verður einnig hægt að fá heimilistæki með díóðuljósum þar sem er hægt að velja um sjö mismunandi liti og breyta stemmingunni í eldhúsinu eftir því. Það eru því spennandi tímar fram undan hjá Rönning." Húsráð og leiðbeiningarMeð hverju seldu heimilistæki hjá Rönning fylgir bók með húsráðum og leiðbeiningum um notkun hvers tækis. Til dæmis hvernig matvæli geymast best í ísskápnum og hvernig meðhöndla á þvott svo eitthvað sé nefnt. Neytendur geta sparað sér umtalsverðar upphæðir í matarinnkaupum með því að geyma matvæli á réttan hátt. Meðalheimili hendir yfir 100 kílóum af grænmeti og öðrum matvælum á ári. Ár eftir ár. Þennan risavaxna haug má að nokkru leyti skrifa á ranga meðferð við geymslu matvæla. Hægt er að lesa um kælisvæðin þrjú í bókinni Brrrhh sem fylgir með Gorenje-kæliskápum. Í bókinni er ekki reynt að bregða ljósi á þá fjölmörgu eiginleika nútíma ísskápa sem hjálpa til við að halda matnum óskemmdum. Sjónum er hins vegar beint að kælisvæðunum þremur sem finna má í flestum ísskápum: +8°C, +5°C, 0°C. Þessi þrískipting skiptir höfuðmáli upp á geymslu matvæla. Neytendur geta sparað sér umtalsverðar upphæðir í matarinnkaupum með því að geyma matvæli á réttan hátt. Leiðbeiningabók fylgir öllum Gorenje-ísskápum.
Mest lesið „Beindu skammbyssu að höfðinu á mér og sögðu: I will kill you“ Atvinnulíf Kaffi Ó-le opið á ný Viðskipti innlent Hættir sem þjálfari kokkalandsliðsins Viðskipti innlent Bíða enn eftir tæpri milljón í endurgreiðslu eftir fall Play Neytendur Framkvæmdastjóri Bónus: „Ég er svona „aulahúmor“-stríðinn“ Atvinnulíf Félögin þeirra högnuðust mest Viðskipti innlent Kostnaður við tónleika útskýri hátt miðaverð Neytendur Opnar útibú Forréttabarsins á kunnuglegum stað Viðskipti innlent Gagnrýna að seljendur og verktakar þurfi einir að lækka verð Viðskipti innlent Klæddu sig í bestu fötin til að virka eldri meðal fræga fólksins Atvinnulíf Fleiri fréttir Einn áhrifamestu markaðsfræðimanna heims með erindi á ÍMARk Gatnamótin opin á ný við Fjarðarkaup Yfir milljón dagskrárliðir sóttir vikulega Greiðsluáskorun Jólagjöf ársins 2025 veltir sigurvegara síðustu tveggja ára úr sessi Ertu þremur mínútum frá draumastarfinu? Kerfi sem virka eins og lungu landeldisstöðva Sjá meira