Groundhog Day - fyrri hluti Pétur Gunnarsson skrifar 9. ágúst 2011 16:00
Bækur. Sjálfstæð þjóð. Trylltur skríll og landráðalýður. Eiríkur Bergmann Einarsson. Veröld, Reykjavík, 2011 364 bls. Eiríkur Bergmann birtir í Sjálfstæð þjóð. Trylltur skríll og landráðalýður greiningu sína á áhrifum þjóðernishugmynda sem mótuðust á tímum sjálfstæðisbaráttunnar á orðræðu íslensku stjórnmálastéttarinnar á lýðræðistímanum. Þetta gerir hann með því að skoða umræður um þau mál sem brunnið hafa á þjóðinni á lýðveldistímanum varðandi samskipti við umheiminn. „Í þjóðernisstefnunni sem mótaðist í sjálfstæðisbaráttunni á nítjándu öld má jafnvel finna sjálfan kjarnann í stjórnmálum landsins" segir Eiríkur og leggur upp með þá kenningu að rótfastar og íhaldssamar hugmyndir sem þróuðust í sjálfstæðisbaráttunni um fullveldi þjóðarinnar „móti enn afstöðu Íslendinga til stjórnmálalegra álitamála, sérstaklega þegar kemur að tengslunum við útlönd". Eiríkur rekur goðsögnina til Jóns Jónssonar Aðils, sagnfræðings og alþýðufræðara, sem hér er settur á stall sem áhrifamesti stjórnmálaspekingur þessa lands síðustu hundrað ár. Í endursögn Eiríks er arfleifð Aðils að finna í mýtu Íslendinga um sjálfa sig og sögu sína sem er einhvern veginn á þessa leið: Einu sinni var þjóð sem átti sér enga líka nema helst á gullöld Forn-Grikkja en glataði sjálfstæðinu og næstum því sjálfri sér þegar gerður var óráðssáttmáli við útlendan kóng. Eftir sex alda myrkur, lifnaði sjálfstæðisneistinn við, þjóðin rumskaði, hristi af sér erlenda ánauðarfjötra og reis úr öskustónni. Hún lofar nú sjálfri sér því að þola aldrei aftur niðurlægingu undir erlendri áþján. Það er heilög skylda þjóðhollra Íslendinga að standa sífellt vörð um fullveldið – ella glatast sjálfstæðið undir erlent yfirvald sem steypir í sömu glötun og gamli sáttmáli. Og þarna er lykill að orðræðu íslenskrar stjórnmálastéttar í átakamálum um samskipti við umheiminn á lýðveldistímanum, segir Eiríkur. Eftir því sem líður á lesturinn hallast lesandinn að því að það sé óþægilega mikið til í þessu hjá honum. Umræðan um stóru málin í þjóðfélaginu sé einn allsherjar Groundhog Day þar sem í sífellu er lesið handrit eftir Jón Jónsson Aðils. Gildir þá einu hvort á dagskrá er NATO, EFTA, landhelgin, EES, ESB, AGS eða Icesave. Eiríkur skrifar lipran texta enda er hann orðinn þjálfaður rithöfundur og hefur verið virkur þátttakandi í þjóðfélagsumræðunni um langa hríð. Verst er að þetta ævintýri Jóns Jónssonar Aðils stendur ekki fyllilega undir sífelldum endurflutningi – það verður leiðigjarnt aflestrar en það má vitaskuld hafa til marks um að kenningin gangi þokkalega upp. Hvort sem lesandinn er staddur í umræðum um Atlantshafsbandalagið á fimmta áratug síðustu aldar eða um ESB á fyrsta áratug þessarar virðist hann fylgjast með sama menúettinum. Eftir því sem líður verða mælskubrögðin ýktari og yfirborðskenndari uns flatneskjan nær hámarki í umræðum um Icesave og ESB síðustu misserin. Niðurstaðan: Niðurstaða af lestrinum er sú að sagan er ævintýri líkust en í bókarlok er hetjan enn í álögum, dæmd til að smjatta á sömu næringarlausu tuggunni. Hvort ævintýrið lýtur sömu lögmálum og önnur og hetjunni tekst áður en yfir lýkur að varpa af sér álögum Jóns Jónssonar Aðils kemur kannski í ljós í næsta þætti.
Mest lesið Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur Lífið Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Lífið „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Lífið Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Lífið Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Lífið Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Gagnrýni Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Lífið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Lífið Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Lífið Fleiri fréttir Ósk um öfgafulla ást og bæling í bakherbergjunum Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Enginn venjulegur sjötugur maður Langdregnir brandarar stoppa ekki stuðið Suddalega slappt Stjörnustríðsslor Plastgangsterar: Þegar Herra Hnetusmjör týndist í Laugardalshöllinni Lítið kjöt á beinum rándýrsins Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Sjá meira