Rapprisar sameina kraftana 28. júlí 2011 14:15 Rappararnir Jay-Z og Kanye West gefa út plötuna Watch the Throne í næsta mánuði. nordicphotos/getty
Rappararnir Jay-Z og Kanye West hafa sameinað krafta sína og gefa út plötuna Watch the Throne innan skamms. Tónlistarunnendur bíða spenntir eftir útkomunni. Rappararnir Jay-Z og Kanye West gefa út plötuna Watch the Throne á iTunes 8. ágúst. Fjórum dögum síðar kemur hún í plötubúðir í föstu formi. Tónlistaráhugamenn um heim allan hafa beðið spenntir eftir útgáfunni enda Jay-Z og Kanye sannkallaðir rapprisar sem standa á hátindi frægðar sinnar um þessar mundir. Samstarfið kemur í sjálfu sér ekki á óvart. Ferill þeirra beggja hefur alla tíð verið samtvinnaður og til að byrja með var Kanye hálfgerður lærlingur hjá Jay-Z. Kanye steig fram á sjónarsviðið sem upptökustjóri hjá Roc-A-Fella Records, þar sem Jay-Z er einn eigenda. Þar vakti hann athygli fyrir vinnu sína við The Blueprint, sjöttu hljóðversplötu Jay-Z. Kanye varð í framhaldinu eftirsóttur upptökustjóri en hélt þó áfram að starfa fyrir Jay-Z og tók upp fjögur lög á næstu plötu hans, auk þess að syngja í einu lagi. Kanye ákvað að hefja eigin rappferil og gaf út sína fyrstu plötu, The College Dropout, hjá Roc-A-Fella Records og síðan þá hafa allar plötur hans komið þar út. Jay-Z var einn af gestasöngvurum á The College Dropout, rétt eins og á næstu plötu Kanye, Late Registration, og á þeirri nýjustu, My Beautiful Dark Twisted Fantasy. Á móti var Kanye gestasöngvari í tveimur lögum á síðustu plötu Jay-Z, The Blueprint 3, og einn af upptökustjórunum. Fyrstu fregnir af samstarfi þeirra félaga bárust í október í fyrra og mánuði síðar hófust upptökur í borginni Bath á Englandi.Upphaflega átti Watch the Trone að vera fimm laga EP-plata en upptökurnar gengu svo vel að ákveðið var að gera heilt albúm. Í janúar kom út fyrsta lagið, H.A.M., sem er eitt af fjórum aukalögum á viðhafnarútgáfu plötunnar. Beyoncé, eiginkona Jay-Z, syngur í laginu Lift Off og í smáskífulaginu Otis rappa félagarnir ofan í lag hins sáluga Otis Redding, Try a Little Tenderness. Fjölmargir lagahöfundar veittu þeim hjálparhönd á plötunni, þar á meðal Pharrell Williams, gamli refurinn Quincy Jones og Justin Veron, forsprakki Bon Iver, sem kom einmitt við sögu á My Beautiful Dark Twisted Fantasy. Jay-Z og Kanye ætla í stóra tónleikaferð um Norður-Ameríku til að kynna plötuna og hefst hún 22. september í Detroit. freyr@frettabladid.is
Tónlist Mest lesið Brynja Dan og Jóhann selja slotið eftir breytingar Lífið Stjörnulífið: „Já, ég er klámfíkill“ Lífið Úr Eurovision í jógað: „Var ekki nógu góð við sjálfa mig eftir þetta“ Lífið Er óeðlilegt að gift fólk frói sér? Lífið Quang Le „virkilega indæll og mjög næs náungi“ Lífið Brynja Dan og Jóhann keyptu glæsihús í Garðabæ Lífið „Ég er pottþétt ekki á leiðinni til Íslands“ Lífið Listapör, dansfjölskylda og rjómi senunnar á Garðinum Lífið Maturinn í Ofurskálinni: Vængirnir étnir í tonnatali Lífið Að vera neitað um listamannalaun reyndist algjör frelsun Lífið Fleiri fréttir Inspector Spacetime í Apple auglýsingu: „Mjög súrrealískt“ „Ég er að heiðra litla Aron“ „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Högni hjálpar fólki að slaka á Kristinn Svavarsson er látinn Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Sjá meira