Keypti sér jólaskraut úti í miðri eyðimörk 1. nóvember 2011 00:01 „Ég er mikil jólakerling og á ekki auðvelt með að benda á uppáhalds jólaskrautið mitt enda er ég annáluð fyrir að finna jólaskraut úti um allan heim," segir hjúkrunarfræðingurinn Ásdís Eckardt. „
Ég er mikil jólakerling og á ekki auðvelt með að benda á uppáhalds jólaskrautið mitt enda er ég annáluð fyrir að finna jólaskraut úti um allan heim," segir hjúkrunarfræðingurinn Ásdís Eckardt, sem hefur meðal annars afrekað það að kaupa jólaskraut í miðri eyðimörk í Ástralíu. „Eins keypti ég glerjólasveina í Feneyjum sem ég flutti með spíttbát yfir til Króatíu, þaðan í rútu til Ítalíu og loks með flugi heim." „Ég kaupi yfirleitt stærsta jólatréð sem ég mögulega kem inn í stofuna en þannig njóta kertin sín best." Ásdís finnur líka ýmislegt heima á fróni og hafði það fyrir sið að fara í Jólabúðina á Skólavörðustíg og kaupa sér eitthvað fallegt á hverju ári. „Þaðan eru til dæmis jólakúlur sem er hægt að merkja og stilla upp við hvern disk á uppdekkuðu jólaborði sem ég held mikið upp á." Ásdís Eckardt, sem hefur meðal annars afrekað það að kaupa jólaskraut í miðri eyðimörk í Ástralíu. „Þær kostuðu hins vegar sitt og gerði ég þau reginmistök að kaupa bara sex þó ég sé nú yfirleitt með fleiri í mat. Ég sendi því manninn minn eftir fleirum en þá voru þær vitanlega búnar." „Ég nota kúlurnar því mest sem skraut enda standa þær stöðugar hvar sem er og fara vel við jólakransinn eða aðrar kertaskreytingar." „Það muna eflaust margir eftir svona seríum frá því í gamla daga en mér finnst eitthvað ótrúlega heillandi við þær." Ásdís má síðan til með að minnast á „bubluseríurnar" sem systir hennar kom með heim frá Bandaríkjunum um árið. „Það muna eflaust margir eftir svona seríum frá því í gamla daga en mér finnst eitthvað ótrúlega heillandi við þær." Bubluseríurnar fá þó ekki að fara á jólatréð því þar er Ásdís með lifandi kerti. „Ég kaupi yfirleitt stærsta jólatréð sem ég mögulega kem inn í stofuna en þannig njóta kertin sín best."- ve
Jólafréttir Mest lesið Jólasaga: Huldufólksdansinn Jól Ást og englar allt um kring Jólin Grýla kallar á börnin sín Jól Jólaguðspjallið er rammpólitískur texti Jól Jólalag dagsins: Jónsi og Selma með Þú komst með jólin til mín Jól Jólalegt í Fjölskyldu- og húsdýrag Jól Þrír mætir konfektmolar Jól Dýrmætar minningar úr æsku Jól Jóladagatal Hurðaskellis og Skjóðu - 5. desember Jól Spennufíkill korter fyrir jól Jólin