Ásgerður: Kláruðum þetta í seinni hálfleik eins og oft áður Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. ágúst 2011 23:22 Mynd/Stefán „
Þetta er geðveikt tilfinning og það er ekki hægt að lýsa þessu," sagði Stjörnukonan Ásgerður Stefanía Baldursdóttir í viðtali á SportTV í kvöld eftir að Stjarnan hafði tryggt sér Íslandsmeistarabikarinn. Stjarnan þurfti einn sigur í síðustu þremur leikjum sínum og hann kom á móti Aftureldingu í kvöld. „Þetta er búin að vera níu mánaða stanslaus vinna og við erum að skila þessu núna í hús. Við Þurftum mjög mikið að hafa fyrir þessu og vorum í miklu basli í fyrri hálfleik. Eins og oft áður þá kláruðum við þetta í seinni hálfleik," sagði Ásgerður Stefanía við Guðmund Marinó Ingvarsson í þessu viðtali í útsendingu SportTV frá leiknum. Ásgerður Stefanía skoraði fyrsta mark Stjörnunnar í leiknum þegar sýndi mikið öryggi á vítapunktinum. Hún segir að taugarnar hafi ekki verið að stríða sér þegar hún steig fram til að taka þetta mikilvæga víti. „Nei, alls ekki. Ég var búin að ræða þetta við Jóa aðstoðarþjálfara. Ég skýt alltaf í sama hornið en þær verja hann ekkert þar," sagði Ásgerður kát. „Í stöðunni 1-0 getur allt gerst og þá var smá spenna í leiknum. Mér fannst við samt ráða ferðinni allan tímann og þær voru ekki að skapa hættu upp við markið okkar. Við kláruðum þetta," sagði Ásgerður Stefanía og hún var ánægð með mætinguna. „Það var frábær mæting og stúkan var full. Ég hef varla séð svona á karlaleik og þetta er bara geðveikt," sagði Ásgerður Stefanía að lokum.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Liðsfélagi Sveindísar opnar sig: Skammast mín og er skíthrædd Fótbolti Aron Jó leystur undan samningi hjá Val Íslenski boltinn „Mér finnst þetta vera hræðilegt“ Handbolti Verndar Viktor eftir slæma reynslu með Orra: „Það var erfitt“ Fótbolti „Ég var mjög svekkt og reið yfir því sem hún gerði“ Sport Viktor sló Meistaradeildarmet Lamine Yamal Fótbolti Sturlað afrek Viktors: „Okkar útgáfa af Woltemade“ Fótbolti „Hún lamdi aðeins á mér“ Handbolti Kynntu fyrst Loga Ólafs en svo Jóa Kalla sem á að koma FH á toppinn Íslenski boltinn Liverpool-krísan stækkar og stækkar eftir stórtap á Anfield Fótbolti Fleiri fréttir Einn fljótasti leikmaður Bestu deildarinnar orðinn Þróttari Aron Jó leystur undan samningi hjá Val Kynntu fyrst Loga Ólafs en svo Jóa Kalla sem á að koma FH á toppinn Atli kveður KR og flytur norður Theodór Elmar hættur hjá KR Hrannar Bogi inn eftir brotthvarf Caulkers Segir ónefndan aðila hafa unnið gegn sér hjá Breiðabliki Alex Freyr frá Fram í Njarðvík Víkingar fá ungan og spennandi kantmann Nýliðarnir fá níutíu leikja mann Jónatan og formaður hissa á tali um KR-löngun Víkingar vilja finna nýtt nafn á Safamýrarsvæðið og biðja um hjálp „Ég væri miklu frekar til í að skipta deildinni í efri og neðri“ Fara loksins inn í íbúðina sem þau keyptu fyrir tveimur árum Árni Snær áfram milli stanganna hjá Stjörnunni Frá Klaksvík á Krókinn Samningi Caulkers við Stjörnuna rift „Að fara frá heimahögunum og í borg óttans“ Rosenörn yfirgefur FH Montiel til KA Sjáðu mörk Íslands í Bakú Hlakkar til að standa sig betur í föðurhlutverkinu Arna Sif aftur heim „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Sjá meira