Sjálfbært draumahús 12. maí 2011 10:52
Þetta nútímalega hús á hitabeltiseyjunni Sentosa í Singapore er sérstaklega hannað fyrir þá sem vilja njóta loftslagsins með opið útsýni til sjávar úr öllum rýmum hússins. Opin færa íbúunum ekki bara útsýni til allra átta heldur skapa náttúrulega loftkælingu þar sem golunni frá hafinu er beint í gegnum allt húsið með verkfræðilegri hugmyndafræði náttúrunnar sem sér til þess að þarna verði aldrei og of heitt eða kalt. Hugmyndin á bak við þessa hönnun gengur út á það að skapa hús í nánum samskiptum við náttúruna. Þetta er meðal annars er gert með því að nota sundlaugina til að tengja húsið og hafið með sjónrænum áhrifum. Bogadregið þakið endurspeglar öldur hafsins og nálægð byggingarinnar við sjóinn. Klæðningin á þakinu dregur í sig sólarljósið sem íbúarnir nota til þess að framleiða allt það rafmagn sem þeir þurfa. Hönnuðir hússins er arkítektarnir hjá Guz Architects en þeir vildu með þessu verki skapa hús sem gæfi eigendunum tækifæri til þess að búa með öllum nútímaþægindum í einstakri nálægð og sátt við náttúruna. Þeir kalla það Fiskihúsið.
Mest lesið Leiðir skilja hjá Ólafi Ragnari og Dorrit Lífið Dorrit um tíðindin: „💦💦💦💦💦💦“ Lífið Perez Hilton fluttur á spítala eftir sjálfsskaða í beinu streymi Lífið Sonur Mari og Njarðar fæddur Lífið Hvað er í gangi á Svalbarða? Lífið Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“ Lífið Líkamlega lemstruð og fötin í rúst en vel þess virði Lífið Hefur „ekki hugmynd um hvað er í gangi“ en kemur Grande samt til varnar Lífið Sankað að sér milljónum fylgjenda á tíu ára ferli Lífið Good Morning America í beinni frá Bláa lóninu á almyrkva Lífið Fleiri fréttir „Betra að vera sein og sæt en fljót og ljót“ Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Stórbrotinn stíll Zendayu Geirvörtur og latex vekja athygli í París Osaka best klædd á Wimbledon Krýndur tískukóngur fótboltans Sjá meira