E-label selt í stærstu vefverslun Bretlands 23. desember 2010 06:00 Heba Hallgrímsdóttir og Ásta Kristjánsdóttir gerðu nýverið samning við stærstu vefverslun Bretlands, Asos.com, um að taka inn vörur E-label.
Íslenska merkið E-label hefur hafið samstarf við vefverslunina Asos.com og verður fáanlegt á síðunni frá og með janúarmánuði. Asos er stærsta vefverslun Bretlands og á hverjum mánuði heimsækja yfir átta milljónir manna síðuna. „Þeir eru búnir að taka inn pöntun frá okkur sem ætti að vera komin í sölu einhvern tímann í janúar. Þeir byrja á því að taka inn línurnar sem komu út á þessu ári og svo bætist vonandi við það í framtíðinni," útskýrir Ásta Kristjánsdóttir, sem rekur E-label ásamt Hebu Hallgrímsdóttur. Undanfarið hafa þær unnið markvisst að því að koma merkinu að í verslunum í Bretlandi og Þýskalandi og virðist sú vinna vera að skila sér núna. „Netsala hefur aukist gífurlega alls staðar í heiminum og við erum því mjög ánægðar að hafa komist inn hjá Asos. Í gegnum þá náum við til markhóps sem við myndum kannski ekki hafa náð til annars, auk þess er það mjög góð auglýsing og kynning fyrir merkið að hafa fengið að tengjast Asos-síðunni." Ásta segir þær stöllur þó fara sér hægt þegar kemur að auknum markaðsyfirráðum. „Við tökum bara eitt spor í einu þegar kemur að því að stækka við okkur. Við höfum farið varlega og passað upp á að fara að engu óðslega, ætli það megi ekki segja að við séum mjög íhaldssamar þegar kemur að þessum málum," segir Ásta og hlær. Auk þess að sölsa Bretlandsmarkað undir sig hafa stúlkurnar haldið innreið sína á Þýskalandsmarkað, sem Ásta segir vera engu minna spennandi verkefni. „Það eru spennandi tímar fram undan en í bili ætlum við að einbeita okkur að því að sinna þessu verkefni eins vel og við getum."- sm
Mest lesið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Lífið Fundu ástina í stjórnarráðinu Lífið Íslenskt par í Köben stofnar nýjan leikjavef Lífið Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Lífið Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur Lífið Forsetinn hótar lögsókn: „Vertu viðbúinn Noah“ Lífið „Ekki láta aldurinn eða stoltið stoppa þig“ Lífið Fleiri fréttir Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni „Með rauf á rassi ef mér verður brátt í brók“ Þetta eru drottningar tískuvikunnar í París Klæðist því sem eykur sjálfstraustið Robyn í hönnun Sólar Hansdóttur Skilnaðarhringir slá í gegn: „Ég set minn á löngutöng“ „Ég fékk alveg gæsahúð þegar ég sá þetta“ Kjólasaga Brooklyns loðin Valentino er allur Ein heitasta stjarna í heimi Hailey Bieber slær í gegn á þvengnum „Eins nakin og ég kemst upp með“ Sjá meira