Frísklegur Wang 7. desember 2010 07:00 Þægilegt og flott.
Alexander Wang leit ekki við svörtum lit í sköpun nýjustu línu sinnar og var afraksturinn frískleg og létt lína fyrir næsta ár. Í nýjustu línu hins unga Alexanders Wang mátti ekki sjá eina einustu flík í svörtum lit. Wang lítur framtíðina björtum augum og lagði út með nýjustu línu sína með bjartsýni og hreinleika, sem gaf línunni létt og skemmtilegt yfirbragð. Sýning Alexanders Wang hófst með flíkum sem allar voru í hvítum lit sem gaf til kynna hreinleika og einfalt líf.Þegar á leið sýninguna mátti sjá pastelliti og brúna, gaf það línunni þann frískleika sem hönnun Wangs bar með sér. Sýningin minnti um margt á tískustrauma frá árinu 1990 og var greinilegt að Wang sótti innblástur sinn til hönnuða á borð við Helmut Lang og Ann Demeulemeester.Lína Wangs höfðar vel til yngri kynslóðar tískudrósa sem vilja hafa flíkurnar þægilegar en jafnframt bera með sér flottan og elegant stíl.
Mest lesið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Lífið Fundu ástina í stjórnarráðinu Lífið Íslenskt par í Köben stofnar nýjan leikjavef Lífið Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Lífið Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur Lífið Forsetinn hótar lögsókn: „Vertu viðbúinn Noah“ Lífið „Ekki láta aldurinn eða stoltið stoppa þig“ Lífið Fleiri fréttir Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni „Með rauf á rassi ef mér verður brátt í brók“ Þetta eru drottningar tískuvikunnar í París Klæðist því sem eykur sjálfstraustið Robyn í hönnun Sólar Hansdóttur Skilnaðarhringir slá í gegn: „Ég set minn á löngutöng“ „Ég fékk alveg gæsahúð þegar ég sá þetta“ Kjólasaga Brooklyns loðin Valentino er allur Ein heitasta stjarna í heimi Hailey Bieber slær í gegn á þvengnum „Eins nakin og ég kemst upp með“ Sjá meira