Búið að reka Benitez frá Inter Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 23. desember 2010 12:41 Rafael Benitez. Nordic Photos / AFP
Internazionale hefur nú staðfest að Rafael Benitez er ekki lengur starfandi knattspyrnustjóri félagsins. Benitez entist aðeins sex mánuði í starfi hjá Inter en hann tók við af Jose Mourinho í sumar eftir að sá síðarnefndi gerði félagið að þreföldum meisturum í vor. Inter hefur átt erfitt uppdráttar í ítölsku úrvalsdeildinni í haust og er í sjöunda sæti deildarinnar með 23 stig, þrettán á eftir AC Milan en á þó tvo leiki til góða. Inter varð í öðru sæti í A-riðli Meistaradeildarinnar, á eftir Tottenham, og tapaði til að mynda 3-0 fyrir Werder Bremen í lokaumferð riðlakeppninnar. Um helgina varð svo félagið heimsmeistari félagsliða. Það var á blaðamannafundi eftir þá keppni að Benitez krafðist þess að forráðamenn Inter myndu annað hvort styðja almennilega við bak hans eða reka hann. Massimo Moratti, stjóri Inter, valdi síðari kostinn. Félagið staðfesti svo á heimasíðu sinni í dag að málsaðilar hafi komist að samkomulagi að Benitez hætti sem knattspyrnustjóri. Benitez hætti hjá Liverpool síðastliðið vor og afrekaði það því að vera í raun rekinn frá tveimur stórliðum í evrópskri knattspyrnu á einu og sama árinu.
Ítalski boltinn Mest lesið Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Fótbolti Íslandsmetin falla í bunkum á Íslandsmótinu í sundi Sport Dagskráin í dag: Stórleikur í enska og NFL á fullt Sport Martin stigahæstur með tvöfalda tvennu Körfubolti Parma nældi í stig gegn toppliði AC Milan Fótbolti „Fæ meira borgað fyrir fyrsta bardagann en flestir fá yfir allan ferilinn“ Sport Norris á ráspól en Verstappen í vandræðum Formúla 1 Þungt Evrópukvöld á Ásvöllum Handbolti „Hallærislegasta smjaður sem íþróttaheimurinn hefur nokkurn tíma séð“ Fótbolti Sanngjarn heimasigur Enski boltinn Fleiri fréttir Parma nældi í stig gegn toppliði AC Milan Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Sanngjarn heimasigur Algjör markaþurrð í Seríu A Tveir í röð hjá West Ham og þægilegt hjá Everton Dramatík í uppbótartíma Union Berlin stöðvaði ótrúlega sigurgöngu Bayern Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Emelía og stöllur með átta stiga forskot Amorim fannst vanta hugrekki til að klára leikinn Stefán Teitur og félagar upp í þriðja sætið Tvö mörk í uppbótartíma í ótrúlegum leik Inter missti niður tveggja marka forskot Boro bannar Edwards að stýra liðinu í dag Ósammála Wenger að Wirtz hafi skemmt miðju Liverpool „Allt sem er satt í dag gæti verið lygi eftir þrjár vikur“ Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Fjölmargir borguðu sig inn á langþráða æfingu Þakklátur Klopp fyrir ríginn: „Ég sakna hans“ Dæmdur sekur vegna sex viðbjóðslegra færslna Kristian fiskaði rautt og fékk svo rautt Glódís leiðir Bayern áfram í hárrétta átt Sædís og Arna fengu silfrið en Diljá meiddist Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Fá ekki hollensku stjörnuna til að yfirgefa rándýra hótelsvítu Albert mættur aftur til Flórens og fær nýjan þjálfara í dag Rekinn aðeins sex mánuðum eftir að hann yfirgaf Liverpool Mamma og pabbi í stúkunni þegar Emelía skoraði þrennuna í bikarnum Fantasýn: Er að hugsa um að taka fyrirliðabandið af Haaland Sjá meira