Óskar Bjarni: Komin gríðarleg breidd í íslenska liðið Ómar Þorgeirsson skrifar 17. júní 2009 19:30 Óskar Bjarni Óskarsson. Mynd/Arnþór
Aðstoðarþjálfarinn Óskar Bjarni Óskarsson var gríðarlega ánægður með sigurinn gegn Makedóníu í kvöld. „Við mættum tilbúnir til leiks og vorum sóknarlega með alveg frábæra skotnýtingu í fyrri hálfleik og síðan vorum við þéttir varnarlega. Við lögðum upp með að halda Lazarov niðri og það gekk að mestu leyti eftir. Við stjórnuðum leiknum það vel að við gátum rúllað mönnum inná og menn gáfu alltaf sitt og komu tilbúnir inn í leikinn. Björgvin var líka góður allan leikinn núna og það munaði vissulega um það. Þetta var því sannfærandi og gott," segir Óskar Bjarni. Óskar Bjarni er í raun gríðarlega ánægður með leikina tvo gegn Noregi og Makedóníu og segir fullan hug í mönnum að klára þetta með stæl gegn Eistum. „Við fengum sextán mörk út úr Noregsleiknum af hægri vængnum en vorum samt án Óla Stef, Ásgeirs og Einars Hólmgeirs. Það sýnir bara að það er komin gríðarleg breidd í íslenska liðið þó svo að við hefðum vissulega kosið að taka öll stigin úr þeim leik. En við hættum ekki og fylgdum þessu eftir með sannfærandi sigri gegn Makedóníu. Nú er bara leikurinn gegn Eistum eftir og við ætlum að fara í hann til að vinna. Einfalt mál," segir Óskar Bjarni.
Íslenski handboltinn Mest lesið „Orðfærið og dónaskapurinn með ólíkindum“ Handbolti „Hallærislegasta smjaður sem íþróttaheimurinn hefur nokkurn tíma séð“ Fótbolti Fá ekki hollensku stjörnuna til að yfirgefa rándýra hótelsvítu Fótbolti „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Íslenski boltinn Goðsögnin sem tortímdi ferlinum handtekinn í Dúbæ og framseldur Sport Ronaldo útskýrir skrópið sitt í jarðarför Diogo Jota Fótbolti Ingibergur hættir sem formaður: „Miklar tilfinningar innra með mér“ Körfubolti Albert mættur aftur til Flórens og fær nýjan þjálfara í dag Fótbolti Slot segir að Isak sé byrjaður aftur að æfa en bað um eitt Enski boltinn Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ákvörðun þjálfarans að taka ekki átján leikmenn: „Hefur ekkert með fjárhagsstöðuna að gera“ „Orðfærið og dónaskapurinn með ólíkindum“ HM hópurinn tilkynntur: Margir reynsluboltar horfnir á braut „Við vorum sjálfum okkur verstir“ Baldur Fritz fór á kostum og Afturelding styrkti stöðuna Uppgjörið: Fram - Valur 27-36 | Arnór í banastuði gegn meisturunum Greint frá ráðningu á vef nýja þjálfarans Víðir vann „diplómatískan sigur“ á þýska handknattleikssambandinu Magdeburg skoraði 45 en lærisveinar Guðjóns Vals úr leik Lovísa með níu í góðum sigri Allar landsliðskonurnar komust á blað Bikarmeistararnir fara norður Björgvin Páll hafi þaggað niður í efasemdaröddum Lýsir eftir leiðtoga íslenska landsliðsins Alfreð klæddist kvennatreyjunni á leiknum við Ísland Forðuðu sér frá bráðsmitandi óléttu í Fram Dönsk landsliðskona eignaðist barn tólf vikum fyrir tímann Uppgjörið: Þýskaland - Ísland 29-31 | Svöruðu skellinum með frábærum sigri Kærastan tók eftir því að eitthvað var að KA/Þór gerði jafntefli við botnliðið Valskonur unnu 24 marka sigur og ÍR upp í annað sætið „Fannst þetta verða svartara og svartara“ Alfreð hissa: Veit að Íslendingar geta mun betur Andri kallaður inn í hópinn fyrir meiddan Hauk Arnór Snær snýr aftur heim Besta handboltadeild heims missir aðalstyrktaraðila sinn Grafalvarleg staða: „Þurfum að fara í sársaukafullar aðgerðir“ ÍR áfram eftir sigur í Mosfellsbæ Uppgjörið: Þýskaland - Ísland 42-31 | Þrot í Þýskalandi Tilkynnti um óléttu og nýjan samning á sama tíma Sjá meira