Sigurður Björn Blöndal: Í aðalhlutverki í athyglisverðri bók Góður forstjóri á vel við 16. nóvember 2008 08:00 „Umhverfismál eru vissulega til trafala í samkvæmum“ Þarna er forstjórinn hrókur alls fagnaðar í veislu sem fáir myndu slá hendi á móti að vera í. fréttablaðið/spessi „
Hugmyndin kviknaði á Gljúfrasteini og vatt upp á sig. Þar var verið að borða taílenskan mat - „take away". Rithöfundur, myndlistarmaður og gamall poppari. Við töluðum við þá Forlagsfeðga sem kveiktu á þessu. Og svo var þetta unnið mjög hratt," segir Sigurður Björn Blöndal sérfræðingur. Um þessar mundir streymir úr prentsmiðjunni afar athyglisverð bók eftir Björn, Auði Jónsdóttur, Spessa og Þórarinn Leifsson. Bókin heitir Forstjóri dagsins og inniheldur 12 póstkort sem menn geta rifið úr bókinni og sent vinum og vandamönnum í útlöndum eða átt í bókarformi - eftir atvikum. Björn er í hlutverki forstjórans, sem lendir í ýmsum aðstæðum og ávallt sem sigurvegari en Spessi tekur myndirnar. Textinn er aðallega í höndum Auðar en Þórarinn sér um umbrot. Þá er textinn þýddur á ensku af Jóni Proppé. Kortin mega heita frumleg og smellpassa inn í stemninguna núna... Kortin eru sannast sagna alveg rífandi fyndin. „Já, það vantar ekki að það er stemning í þessu. Hugmyndin kom upp helgina fyrir Glitnishrunið. En það er engin uppgjöf í þessum mönnum. Þessari týpu mannlífsflórunnar þótt harðni á dalnum. Hún aðlagar sig. Hún mun lifa af. Trappar sig kannski aðeins niður en samt er alltaf ákveðinn standard. Þessi týpa á til dæmis alveg sinn Range Rover enn þá. Það er nú málið," segir Björn sem sýnir á sér áður óþekkta hlið sem frábær fyrirsæta í hlutverki forstjórans. Og þó: Margir muna eftir Smekkleysu-kortum, sem voru gerð fyrir um tíu árum, þar sem Óttar Proppé, Björn og fleiri voru í aðalhlutverkum. Og í framhaldi voru gerð eftirminnileg jólakort. Forstjórakortin virðast við fyrstu sýn sverja sig í þá ætt. Björn segir enga tengingu nema þá að hann sé með. „Já, það tók sig upp gömul fyrirsæta. En þetta er í grunninn allt annað konsept. Miklu afmarkaðra viðfangsefni."
Mest lesið Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Lífið Myndaveisla: Tröllatrukkur og Rolls Royce á svæðinu þegar hjónin gengu út Lífið Nígerísk hjón reisa glerkastala í Kjós og flytja inn tonn af blómum til að gifta sig aftur Lífið Fréttatía vikunnar: Gleðigangan, hafmeyjustytta og handtaka Lífið Hommar, lesbíur, trans fólk og fleiri sameinast í gleðinni Lífið Nígerískt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju Lífið Hver er Endakallinn frá Ibiza? Lífið Bay segir skilið við Smith Lífið Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Lífið samstarf Orðin vön ferðamönnum í garðinum og fagnar komu þeirra Lífið Fleiri fréttir Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira