Reggina heldur sæti sínu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 11. maí 2008 19:16 Marco Materazzi (til hægri) klúðraði mikilvægri vítaspyrnu í dag. Nordic Photos / AFP
Reggina tryggði í dag sæti sitt í ítölsku úrvalsdeildinni með 2-0 sigri á Empoli. Inter gerði hins vegar jafntefli í dag. Emil Hallfreðsson var ekki í leikmannahópi Reggina í dag. Liðið er nú í sextánda sæti deildarinnar með 39 stig, fimm stigum frá fallsvæðinu þegar ein umferð er eftir af deildinni. Empoli féll úr deildinni í dag en Parma getur bjargað sér frá falli með sigri á meistaraefnunum í Inter í lokaumferðinni, ef Catania tapar á móti Roma. Það eru einmitt Inter og Roma sem eiga enn möguleika á meistaratitlinum á Ítalíu. Eitt stig skilur að liðin fyrir lokaumferðina þar sem Inter gerði jafntefli við Siena í dag, 2-2. Marco Materazzi misnotaði vítaspyrnu hjá Inter undir lok leiksins. Roma vann hins vegar 2-1 sigur á Atalanta og minnkaði þar með forskot Inter í eitt stig. Barátta Fiorentina og AC Milan um fjórða sæti deildarinnar og þar með þátttökurétt í Meistaradeild Evrópu er einnig mjög spennandi. AC Milan var með eins stigs forystu á Fiorentina í dag en tapaði fyrir Napoli, 3-1. Á sama tíma vann Fiorentina sigur á Parma og er því komið með tveggja stiga forystu á AC Milan. AC Milan mætir Udinese á heimavelli í lokaumferðinni og Torino tekur á móti Fiorentina. Úrslit og helstu markaskorarar: Inter - Siena 2-2 1-0 Patrick Vieira (11.), 1-1 Massimo Maccarone (30.), 2-1 Mario Balotelli (45.), 2-2 Houssine Kharja (69.). Napoli - AC Milan 3-1 1-0 Marek Hamsik (36.), 2-0 Maurizio Domizzi, víti (69.), 3-0 Mariano Bogliacino (90.), 3-1 Clarence Seedorf (90.). Roma - Atalanta 2-1 1-0 Christian Panucci (23.), 2-0 Daniele De Rossi (67.), 2-1 Gianpaolo Bellini (88.). Fiorentina - Parma 3-1 Genoa - Lazio 0-2 Juventus - Catania 1-1 Livorno - Torino 0-1 Palermo - Sampdoria 0-2Reggina - Empoli 2-0 Udinese - Cagliari 0-2
Ítalski boltinn Mest lesið Fyrrum kappaksturshetja og fjölskylda hans létust í flugslysi Sport Segir fjórðung í bók Óla ósannan Íslenski boltinn „Grimmileg áminning um hversu harkalegt og grimmt lífið getur verið“ Fótbolti „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Enski boltinn Hætti við að keppa út af hundinum sínum Sport Elías mættur til meistaranna Íslenski boltinn Helmingur landsliðskvenna er undir lágmarkslaunum Fótbolti „Er því miður kominn í jólafrí“ Handbolti KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Íslenski boltinn Syrgir góðan félaga í Åge: „Ótrúlega leiðinlegt að hann sé nú farinn“ Fótbolti Fleiri fréttir Hrannar Snær til Noregs Breiðablik, Valur og Þór/KA fengu milljónir vegna EM Elías mættur til meistaranna Syrgir góðan félaga í Åge: „Ótrúlega leiðinlegt að hann sé nú farinn“ KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Karólína Lea því miður of snemma í jólafrí Alexander Isak fékk sænska gullboltann Hilmar Árni til starfa hjá KR „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Helmingur landsliðskvenna er undir lágmarkslaunum „Grimmileg áminning um hversu harkalegt og grimmt lífið getur verið“ Segir fjórðung í bók Óla ósannan Í fyrsta sinn rukkað inn á Fan Zone á HM Davíð sendir hjartnæma kveðju til Hareide Svona endaði Sambandsdeildin: Finnarnir áfram eftir jafntefli við Palace Strasbourg - Breiðablik 3-1 | Hetjuleg barátta dugði skammt Napoli í úrslit í Sádi-Arabíu Åge Hareide látinn Amorim vill Neves Benti á hinn íslenska Dan Burn „Við þurfum bara að keyra á þetta“ Segir Nóel Atla frábært dæmi um það þegar hlutirnir gangi upp Glódís gæti þurft að ryðja Man. Utd og Barcelona úr vegi að úrslitaleiknum Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Evrópusumma Blika komin í 800 milljónir og gæti nálgast milljarð í kvöld Liðsfélagi landsliðsmanns missti unga frændur sína í sprengingu Forsætisráðherrann hótar Roman Abramovich og segir að „klukkan tifi“ Bíður eftir kallinu frá Arnari: „Myndi segja að ég væri klár“ „Sýnum kvennaíþróttir af því að þær eru frábærar“ Sjá meira