Gefur út tónlist úr leikriti 24. nóvember 2008 05:00 Gefur út sjálf. Jarðþrúður sér sjálf um útgáfu tónlistarinnar úr leikverkinu Dansaðu við mig sem kemur út í næstu viku. „
Þetta er í fyrsta sinn sem ég sem tónlist við leikverk," segir Jarþrúður Karlsdóttir sem gefur úr plötu með tónlistinni úr leikritinu Dansaðu við mig, en verkið er sýnt í Iðnó um þessar mundir. Jarðþrúður hefur samið tónlist um árabil og meðal annars sungið með hljómsveitinni Thunder cats auk þess sem hún hefur starfað sem hljóðmaður í Þjóðleikhúsinu um nokkurt skeið. „Ég hef samið alls konar tónlist í mörg ár, en það var allt öðruvísi að semja tónlist fyrir leikrit því hún þarf fyrst og fremst að falla að verkinu. Það var töluverð vinna, aðallega því ég hef svo mikla fullkomnunaráráttu, en rosalega skemmtilegt," segir Jarþrúður sem syngur lögin sjálf og sér að mestu leyti um hljóðfæraleikinn á plötunni. „Þetta er frekar minimalísk tónlist, en ég bætti aðeins við undirleikinn á plötunni svo hún standi betur ein og sér," bætir hún við. Auk tónlistarstarfanna lætur Jarþrúður sig varða þjóðfélagsmálin og er félagi í samtökunum Undirrót sem urðu til í kjölfar kreppunnar. „Kjarninn í hópnum er átta manns og við hvetjum fólk til að mótmæla á friðsamlegan hátt, en allir sem vilja leggja okkur lið eru velkomnir. Mér finnst ástandið í samfélaginu það rosalegt að ég gat ekki bara setið heima og gert ekki neitt," segir Jarþrúður að lokum, en plata hennar er væntanleg í verslanir í næstu viku. - ag
Mest lesið Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ Lífið Sækir um sem kærasti með nýju húðflúri Bíó og sjónvarp Fréttatía vikunnar: Úkraína, hoppukastali og George R. R. Martin Lífið Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Lífið Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Lífið „Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna“ Lífið Frá jólamörkuðum Evrópu til ævintýra í Asíu og Afríku Lífið samstarf „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Tíska og hönnun Örlaganótt á Kiki varð að ást um ókomna tíð Lífið Fleiri fréttir Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira