Raunir Britneyjar Karen Kjartansdóttir skrifar 15. janúar 2008 06:00 Í gamla daga, áður en tilveran varð þægileg og hlutirnir að mestu einnota, þótti fínt að fara í ægilega langa ástarsorg. Helst átti hún að endast fólki ævina og á dánarbeði átti fólk svo að minnast unglingsástarinnar, sem aldrei varð. Þetta þótti mér ákaflega fallegt fyrirbæri þegar ég var barn og skildi vel hvers vegna fólk hafði rifið Raunir Werthers unga úr verslunum, hvers vegna Jónas Hallgrímsson hafði orðið drykkjumaður og hvers vegna ekkert hafði blessast í lífi Skáld-Rósu. Í þá daga velti ég því einnig fyrir mér hvers vegna samtímaskáldin ortu ekki á jafn rómantískum nótum og meistarar fortíðarinnar. Á þeim árum var ég einnig innilega skotin í rauðhærðum bekkjarbróður mínum. Ég sá fyrir mér að minning mín um hann yrði sem rauður þráður í skrifum mínum síðar á lífsleiðinni, þegar ég væri orðin fræg og sérvitur skáldkona. Framtíðarsýn mín um ódauðlega ást í garð rauðhaussins gekk ekki eftir. Hann er að vísu einn af „vinum" mínum á Facebook-síðunni minni en lengra nær það ekki. Kannski væri minning mín um hann merkilegri ef þetta hefði verið ást í meinum, sem einmitt var algengt minni í rómantískum bókmenntum fortíðarinnar. Nú, eða ef ég hefði hann ekki daglega fyrir augunum á Facebook. Það er erfitt að fyllast ódauðlegum söknuði vegna manns sem starfar í veitingabransanum eða einhverju álíka hversdagslegu. Þá er betra að lifa í óvissunni um örlög fólks. Kannski hann hafi orðið ljóðskáld, fundið upp stoðtæki sem hjálpar einfættum börnum eða grafi áveitur einhvers staðar í Afríku? Reyndar sýnist mér að Britney stalla mín Spears sé að blása glæðum í síðrómantík samtímans. Hún vakti strax vonir hjá mér eftir að hafa greint frá því að hún væri sannfærð um að meyjar eins og hún ættu að bíða með kynlíf þar til þær hittu hinn eina rétta. Þetta fallega og gamaldags viðhorf snart mig svo að ég rifjaði upp gömul ástarljóð með tár á hvarmi. En eins og glöggir lesendur slúðurdálka hafa eflaust komist að stóð Britney ekki alveg undir væntingum mínum. Þó verðskuldar ekkert stjörnuhrap jafn mörg tár og hennar. Britney gæti sómað sér vel sem fallin kona í gotneskri skáldsögu; hún er konan sem aldrei hefur náð sér eftir að hún glataði fyrstu ástinni, Justin Timberlake. Og því er hún dæmd til að tærast upp með harmkvælum og í vesöld, hamstola af harmi. Margir segja í fávisku sinni að þessi fagri listamaður sé holdgervingur úrkynjunar samtímans en sannleikurinn er sá að það er Britney sem heldur uppi merkjum gamalla gilda samfélagsins. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Karen Kjartansdóttir Mest lesið Hver vill eldast ? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Að gefnu tilefni – Upplýsingar um Fjarðarheiðargöng Jónína Brynjólfsdóttir Skoðun Er virkilega hvergi pláss fyrir einhverfan forritara? Elísabet Guðrúnar Jónsdóttir Skoðun Þessir píkubörðu menn Eva Hauksdóttir Skoðun Ísland að grotna niður í fjöldaferðamennsku Eggert Sigurbergsson Skoðun Gervigreindin brotlendir: Notendum fækkar, áhugi minnkar, ávinningur enginn, traustið núll Brynjólfur Þorvarðsson Skoðun Draumurinn um jafna foreldraábyrgð sem varð að martröð þolenda ofbeldis í nánum samböndum Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir,Kolbrún Dögg Arnardóttir Skoðun Þegar Guð breytist í ljósmóður – og þegar kvöldmáltíðin breytist í annað en borð Drottins Hilmar Kristinsson Skoðun Ríkið græðir á eigin framkvæmdum Jónína Brynjólfsdóttir Skoðun Hvernig eigum við að mæta gervigreind í skólanum? Geir Finnsson Skoðun
Gervigreindin brotlendir: Notendum fækkar, áhugi minnkar, ávinningur enginn, traustið núll Brynjólfur Þorvarðsson Skoðun
Draumurinn um jafna foreldraábyrgð sem varð að martröð þolenda ofbeldis í nánum samböndum Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir,Kolbrún Dögg Arnardóttir Skoðun
Þegar Guð breytist í ljósmóður – og þegar kvöldmáltíðin breytist í annað en borð Drottins Hilmar Kristinsson Skoðun
Gervigreindin brotlendir: Notendum fækkar, áhugi minnkar, ávinningur enginn, traustið núll Brynjólfur Þorvarðsson Skoðun
Draumurinn um jafna foreldraábyrgð sem varð að martröð þolenda ofbeldis í nánum samböndum Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir,Kolbrún Dögg Arnardóttir Skoðun
Þegar Guð breytist í ljósmóður – og þegar kvöldmáltíðin breytist í annað en borð Drottins Hilmar Kristinsson Skoðun