Bragi í Ameríku 23. ágúst 2007 07:30 Bragi Ólafsson skáld.
Edda útgáfa hefur gert samning við forlagið Open Letter í Bandaríkjunum um útgáfu á Gæludýrunum eftir Braga Ólafsson. Kemur sagan út þar haustið 2008. Open Letter, sem er nýtt forlag í eigu Rochester- háskóla, gefur út þýddar samtímabókmenntir fyrir hinn enskumælandi heim. Gæludýrin er grátbrosleg frásögn af ótímabærum endurfundum tveggja ungra manna sem eiga fátt sameiginlegt annað en það að vera Íslendingar. Bókin var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2001 og Menningarverðlauna DV, og er komin út í Danmörku og Þýskalandi. Er þessi áfangi merkilegur fyrir Braga sem er orðinn vinsæll höfundur og hefur að auki sent frá sér ljóðasöfn og leikrit. Danska forlagið Athene mun gefa út nýjustu skáldsögu Braga, Sendiherrann, en hún var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna í fyrra. Athene er hluti Aschehoug í Danmörku sem er í eigu Egmont og kemur sagan út snemma á næsta ári.
Mest lesið Love on the Spectrum-stjarna spókar sig á klakanum Lífið „Þetta er bara nútímavændi“ Lífið Pattra með pæju-padelmót Lífið Hvað veistu um... Pólland? Lífið Stjörnulífið: Heitustu skvísur landsins mála Ibiza rauða Lífið Sendi nýrri kærustu kveðju í stúkuna Lífið Thelma og Sveinn Aron sjóðheitt par Lífið Dorrit þvoði hárið í íslenskri náttúru Lífið Seiðandi Alaska heillaði gesti upp úr skónum Tónlist „Eins og þegar einangrunarplasti er strokið eftir glerrúðu“ Lífið Fleiri fréttir Málverk af Danakonungi vekur athygli Léleg lokasena skemmir ágætt leikrit Þura Stína nýr stjórnandi HönnunarMars Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Frægir í fjöri yfir framtíðinni Varkár Magga Bjarna fyllti Tjarnarbíó Kanónur komu saman í Hveragerði Eva Rún og Blær hljóta Barnabókaverðlaun Guðrúnar Helgadóttur Íslenskar Simpsons-þýðingar í bók: Teygju-túli ekki á færi gervigreindarinnar Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira