Innréttingarnar lifna við 31. maí 2007 06:30 Sigríðar Ágústsdóttur Sýningaraðstaða og verslun verður opnuð í Aðalstræti 10 í dag.
Formleg opnun á starfsemi í nýendurbyggðu Húsi Innréttinganna og viðbyggingu í Aðalstræti 10 verður kl. 17 í dag en í gamla húsinu á neðri hæðinni verður Reykjavíkurborg með sýningu í Fógetastofum. Þar verður í sumar sýning á vegum Minjasafns Reykjavíkur um upphaf byggðar við Aðalstræti og í Grjótaþorpi. Til sýnis eru líkön og ljósmyndir frá Reykjavík þar sem sjá má hvernig byggð í Reykjavík þróaðist fyrstu hundrað árin eftir stofnun kaupstaðarins árið 1786. Upphaf þéttbýlis í Reykjavík má rekja til Innréttinganna og húsið Aðalstræti 10 stendur eitt eftir af þeim húsum sem reist voru fyrir verksmiðjurnar. Á efri hæðinni er starfsemi Handverks og hönnunar en markmið þess félagsskapar er að stuðla að eflingu handverks, hönnunar og listiðnaðar og auka gæðavitund á þessu sviði. Einnig að auka skilning almennt á menningarlegu, listrænu og hagnýtu gildi handverks, hönnunar og listiðnaðar með fjölbreyttri kynningarstarfsemi. Á efri hæðinni er einnig lítill sýningarsalur sem kallaður er „Á skörinni“. Þar mun Sigríður Ágústsdóttir leirlistakona opna sýningu á handmótuðum og reykbrenndum vösum. Sigríður býr á Akureyri en lærði bæði í Englandi og Frakklandi. Hún hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í mörgum samsýningum. Sýningin „Á skörinni“ er opin á skrifstofutíma til 28. júní. Í glæsilegu bakhúsi sem er á tveimur hæðum er rekin verslunin Kraum – icelandic design. Hópur hönnuða og fjárfesta tók höndum saman og stofnaði þetta fyrirtæki. Í versluninni verður seldur fatnaður, skartgripir og margs konar nytjavörur frá yfir sjötíu íslenskum hönnuðum. Á efri hæð bakhússins verða í framtíðinni fjölbreyttar innlendar og erlendar hönnunarsýningar.
Mest lesið Með sex sjúkdóma og ólæknandi mein en lætur ekkert stoppa sig Lífið Myndaveisla: Samstaða og stolt í algleymingi í Gleðigöngunni Lífið Krakkatían: Afmælistónleikar, maraþon og bílpróf Lífið Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Lífið Nígerísk hjón reisa glerkastala í Kjós og flytja inn tonn af blómum til að gifta sig aftur Lífið Myndaveisla: Tröllatrukkur og Rolls Royce á svæðinu þegar hjónin gengu út Lífið Nígerískt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju Lífið Fréttatía vikunnar: Gleðigangan, hafmeyjustytta og handtaka Lífið Fann lausn við verkjunum sem breytti öllu Lífið samstarf Hommar, lesbíur, trans fólk og fleiri sameinast í gleðinni Lífið Fleiri fréttir Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira