Mælt með stofnun Flugminjasafns Íslands 18. maí 2007 08:00 Tíska og aðbúnaður flugfreyja- og þjóna hefur breyst töluvert frá því að þessi mynd var tekin.
Fyrir rúmu ári skipaði menntamálaráðherra nefnd til að kanna stöðu flugminjasafna á landinu. Nefndinni var falið að sinna eftirfarandi verkefnum sérstaklega: Kanna hvaða heimildir eru til um íslenska flugsögu og hvaða skráning hefur farið fram á íslenskum flugminjum. Safna saman upplýsingum um þær flugminjar s.s. flugvélar, flök flugvéla, flugvallarbúnað, ljósmyndir, kvikmyndir og aðrar minjar sem nýtast myndu við stofnun safns af þessum toga. Hún skyldi kanna þau söfn sem nú þegar eru í rekstri: Flugminjasafn Íslands á Akureyri og Flugminjasafnið á Hnjóti og koma með tillögur um hvernig megi samræma þennan rekstur, hvaða rekstrarform myndi henta slíku flugminjasafni og hvaða aðilar gætu komið að rekstrinum. Hvaða kostir eru í staðsetningu, ekki síst með tilliti til þeirra safna sem þegar eru starfrækt. Nefndin hefur nú skilað áliti og er það að finna á vef ráðuneytisins. Nefndin telur mikilvægi flugminjasafns á Íslandi ljóst, sér í lagi þar sem flugsaga er stór þáttur í menningu landsins, en upphaf flugsamgangna markaði tímamót hér á landi hvað varðar samskipti við aðrar þjóðir. Nefndin leggur til að stofnað verði Flugminjasafn Íslands sem samnefnari sjálfstæðra flugsafna á Íslandi með sameiginlegri stofnskrá sem tryggi samstarf, yfirsýn og heildarstefnumótun. Flugsafnið á Akureyri er að mati nefndarinnar eina safnið sem uppfyllir sem stendur skilyrði sem aðildarsafn að Flugminjasafni Íslands. Önnur söfn gætu síðar einnig orðið aðilar, svo sem fyrirhuguð flugsöfn í Reykjavík og á Suðurnesjum. Vekur athygli að safnið á Hnjóti er ekki talið með í tillögum nefndarinnar og hljóta það að vera vonbrigði Vestfirðingum en safnið á Hnjóti hefur verið nokkurt aðdráttarafl ferðamönnum. Einnig verði formlegt samstarf við önnur söfn, fyrirtæki og félög sem sinna flugsögunni með einum eða öðrum hætti. Fyrirmynd að þessu er stofnun samtaka sjóminjasafna á Íslandi.
Mest lesið Örlaganótt á Kiki varð að ást um ókomna tíð Lífið Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ Lífið Fréttatía vikunnar: Úkraína, hoppukastali og George R. R. Martin Lífið Sækir um sem kærasti með nýju húðflúri Bíó og sjónvarp Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu Lífið Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Lífið Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Lífið Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp „Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna“ Lífið „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Tíska og hönnun Fleiri fréttir Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira