Saga bústaðanna 30. apríl 2007 06:30 Húsfélag alþýðu leitar nú að fróðleik og minningabrotum um daglegt líf í verkamannabústöðunum í Reykjavík.
Nokkuð er liðið síðan menn tóku að hafa áhyggjur af því að heimildir væru fáar til um Verkamannabústaðina við Hringbraut. Það var fyrsta stóra átakið sem verkafólk í Reykjavík sýndi til að koma húsnæðismálum sínum í lag með samtakamættinum: forkólfur í byggingu þeirra var Héðinn Valdimarsson en hann lagði fram frumvarp á þingi 1924 um að þeir risu. Minnisstæð eru frásögn Guðmundar J. Guðmundssonar verkalýðsforinga, en hann var í hópi þeirra sem fluttu þangað fyrstir inn, í heimildarþætti um hann sem Ólafur Friðriksson blaðamaður og Guðbergur Davíðsson gerðu fyrir mörgum árum; þar lýsti hann hversu ríkar kröfur bláfátækt fólk gerði um vandaðan frágang og hagkvæman í hinum nýju húsum. Nú vill Húsfélag alþýðu sem rekur bústaðina ná saman heimildum frá fyrstu áratugunum í Verkó: munnlegum frásögnum þeirra sem bjuggu þar, ljósmyndum ef til eru af hvaða tagi sem er, bæði úti og inni. Þeir sem þar bjuggu eða þekkja til einhvers sem ólst þar upp eru beðnir að hafa samband. Allar myndir eru velkomnar, hversu fátæklegar sem þær eru. Röðum myndinni saman af fyrsta myndarlega átaki alþýðufólks til að koma yfir sig þaki með samtakamætti og komast úr kofunum. Upplýsingar má senda í pósti á verko@vortex.is eða til Húsfélags alþýðu, pósthólf 700, 121 Reykjavík eða koma munnlega til Kristínar Robertsdóttur í síma 551-5760.
Mest lesið Með sex sjúkdóma og ólæknandi mein en lætur ekkert stoppa sig Lífið Myndaveisla: Samstaða og stolt í algleymingi í Gleðigöngunni Lífið Missti höndina viku fyrir sextán ára afmælisdaginn Lífið Krakkatían: Afmælistónleikar, maraþon og bílpróf Lífið Nígerísk hjón reisa glerkastala í Kjós og flytja inn tonn af blómum til að gifta sig aftur Lífið Myndaveisla: Tröllatrukkur og Rolls Royce á svæðinu þegar hjónin gengu út Lífið Nígerískt stjörnubrúðkaup í Hallgrímskirkju Lífið Fréttatía vikunnar: Gleðigangan, hafmeyjustytta og handtaka Lífið Hommar, lesbíur, trans fólk og fleiri sameinast í gleðinni Lífið Bay segir skilið við Smith Lífið Fleiri fréttir Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira