Sungið á aðventu 14. desember 2006 16:30 Kammerkórinn Vox Academica. Flytja Bach og Händel á aðventutónleikum sínum.
Kammerkórinn Vox academica fagnaði tíu ára afmæli sínu í haust sem leið og af því tilefni verða árlegir aðventutónleikar kórsins með sérstökum hátíðablæ. Á tónleikum annað kvöld mun kórinn flytja verkin Magnificat eftir Johann Sebastian Bach og Messías eftir George Friedrich Händel. Bæði verkin eru nátengd aðventunni og jólunum, enda lýsa þau boðun fæðingar frelsarans og tjá fagnaðarboðskap jólahátíðarinnar í sterku og margslungnu tónmáli þessara meistara barrokksins. Messías er mikið og langt verk en á tónleikunum verða fluttir þeir þættir verksins sem tengjast beint boðskap jólanna sjálfra, auk hins þekkta Hallelúja-þáttar. Magnificat Bachs verður flutt í heild sinni. Flytjendur ásamt kórnum verða sópransöngkonurnar Hallveig Rúnarsdóttir og Lilja Eggertsdóttir, Sesselja Kristjánsdóttir alt, Þorbjörn Rúnarsson tenór og Ágúst Ólafsson bassasöngvari. Stjórnandi og stofnandi Vox academica er Hákon Leifsson. Miða á tónleikana má nálgast í verslununum 12 Tónum við Skólavörðustíg og Tónastöðinni að Skipholti 50d og hjá kórfélögum.
Mest lesið Á batavegi fjórum mánuðum eftir slysið Lífið Cruise afþakkaði boð Trump Lífið Bieber fékk sér smók í Skagafirði Lífið Tekur á „að fara stöðugt á þennan dimma stað“ Lífið Örn Eldjárn kaupir hús Jóns Ólafssonar Lífið Syrgir gamla íslenska skyrið: „Nánast með verstu menningarglæpum okkar sögu“ Menning Ársgömul færsla á Reddit kveikjan að samstarfinu Lífið Björn Bragi, Jón Jónsson og Anna Svava í handritsteymi Áramótaskaupsins Lífið „Það var aldrei uppgjöf í hans huga, alltaf jákvæðni“ Lífið „Yngsti „self made“ milljónamæringur undir þrítugu“ Lífið Fleiri fréttir Tilkynnti tólftu plötuna í hlaðvarpi kærastans „Öll dýrin í skóginum voru vinir“ Úr kjallaranum hjá mömmu yfir á stóra sviðið „Óljósir, fallegir og stundum óþægilegir hlutir“ Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Borgin býður í tívolíveislu Dylan leggur blátt símabann á tónleikagesti „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Sjá meira