Megas í meðförum 13. desember 2006 14:45 Magga Stína treður upp ásamt sérlegri sveit sinni Flytja lög Megasar norðan og sunnan heiða. MYND/Heiða
Söngkonan Magga Stína og hennar liðtæka hljómsveit halda tvenna tónleika á næstunni, annað kvöld verða listir leiknar á kaffihúsinu Græna hattinum á Akureyri og á föstudagskvöld troða hljómlistarmennirnir upp á Domo bar við Þingholtsstræti í Reykjavík. Magga Stína og félagar kynna disk sinn, Magga Stína syngur Megas, þar sem heyra má nýjar útsetningar á tón- og textasmíðum Megasar, þar af þrjú ný lög tónskáldsins. Lög á borð við „Fílahirðirinn frá Súrín“ og „Aðeins eina nótt“ hafa víða hljómað á öldum ljósvakans og fá hlustendur nú tækifæri til þess að heyra þau í lifandi flutningi. Uppselt var á útgáfutónleika sveitarinnar í nóvember og góður rómur gerður að frammistöðu listamannanna þar . Sveitina skipa Kristinn H. Árnason gítarleikari, Guðni Finnsson kontrabassaleikari, Hörður Bragason sem leikur á harmonikku og fleiri ólíkindatól og trommu- og slagverksleikarinn Sigtryggur Baldursson. Miðar á tónleikana verða seldir í Pennanum, Glerártorgi, og við inngang Græna hattarins en miðar á tónleikana sunnan heiða eru seldir á midi.is, á forlagsskrifstofu Bjarts við Bræðraborgarstíg og við inngang djassbúllunnar Domo.
Mest lesið Á batavegi fjórum mánuðum eftir slysið Lífið Bieber fékk sér smók í Skagafirði Lífið Syrgir gamla íslenska skyrið: „Nánast með verstu menningarglæpum okkar sögu“ Menning „Yngsti „self made“ milljónamæringur undir þrítugu“ Lífið Svaraði eiginmanninum fyrrverandi: „Eldandi, þrífandi og alandi upp börn“ Lífið Tekur á „að fara stöðugt á þennan dimma stað“ Lífið Cruise afþakkaði boð Trump Lífið Gugga í gúmmíbát fagnaði afmæli sínu með heitustu guggum landsins Lífið Valdi hættur að spila í neðri deildunum Lífið Innsýn í molnandi hjónaband: „Persónuleikinn þinn var ekki svona fyrir nokkrum árum“ Lífið Fleiri fréttir Tilkynnti tólftu plötuna í hlaðvarpi kærastans „Öll dýrin í skóginum voru vinir“ Úr kjallaranum hjá mömmu yfir á stóra sviðið „Óljósir, fallegir og stundum óþægilegir hlutir“ Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Borgin býður í tívolíveislu Dylan leggur blátt símabann á tónleikagesti „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Sjá meira