Seinustu á árinu 13. desember 2006 16:15
Hljómsveitin Ghost-igital, sem var nýverið tilefnd til þrennra íslenskra tónlistarverðlauna, heldur tónleika á Sirkus á miðvikudag. Ghostigital, sem er skipuð Curver og Einari Erni, er að kynna plötu sína sem nefnist In Cod We Trust sem kom út um allan heim í mars á þessu ári. „Þetta verða seinustu tónleikarnir okkar fyrir jól. Við erum að renna í nýja plötu og erum að fara í stúdíóvinnu," segir Curver. „Við ætlum að klára hana fyrir febrúar en hún kemur ekki út fyrr en seinna á árinu." Hægt er að sjá nýtt myndband frá Ghost-igital við lagið Northern Lights á heimasíðunni ghostigital.com. Í laginu er bandaríski rapparinn Sensational gestasöngvari. Eftir áramót er síðan væntanlegt annað myndband frá sveitinni sem var tekið upp á neðansjávartónleikum í gömlu sundlauginni í Keflavík. Ghostigital er sjóðheit um þessar mundir eftir mánaðarlangt tónleikaferðalag um Bandaríkin í haust þar sem sveitin hitaði upp fyrir rokksveitina The Melvins. Tónleikarnir á Sirkus hefjast klukkan 21 og er ókeypis inn.
Mest lesið Á batavegi fjórum mánuðum eftir slysið Lífið Bieber fékk sér smók í Skagafirði Lífið Svaraði eiginmanninum fyrrverandi: „Eldandi, þrífandi og alandi upp börn“ Lífið Tekur á „að fara stöðugt á þennan dimma stað“ Lífið Cruise afþakkaði boð Trump Lífið Björn Bragi, Jón Jónsson og Anna Svava í handritsteymi Áramótaskaupsins Lífið Örn Eldjárn kaupir hús Jóns Ólafssonar Lífið Forsetahjónin létu sig ekki vanta Lífið Ársgömul færsla á Reddit kveikjan að samstarfinu Lífið Syrgir gamla íslenska skyrið: „Nánast með verstu menningarglæpum okkar sögu“ Menning Fleiri fréttir Tilkynnti tólftu plötuna í hlaðvarpi kærastans „Öll dýrin í skóginum voru vinir“ Úr kjallaranum hjá mömmu yfir á stóra sviðið „Óljósir, fallegir og stundum óþægilegir hlutir“ Opnar sig um stormasamt hjónaband á nýju plötunni Borgin býður í tívolíveislu Dylan leggur blátt símabann á tónleikagesti „Gerum allt fyrir konurnar í okkar lífi“ Quarashi á Lopapeysunni: „Við erum synir Akraness“ „Svo leiðinlegt að pæla hvað öðru fólki finnst“ Forsala á Kaleo seldist upp á innan við mínútu Sjá meira