Upplestur á Gljúfrasteini 3. desember 2006 16:30 Heimsókn á Gljúfrastein. Bókmenntaunnendur geta gengið að heimilislegum upplestrum á sunnudögum í desember.
Hefð hefur skapast fyrir því að höfundar lesi úr nýjum bókum í húsi skáldsins Halldórs Laxness á Gljúfrasteini í desember. Þessar samkomur hafa ætíð verið vel sóttar enda myndast oft skemmtileg stemmning í stofunni þegar höfundar lesa við þessar heimilislegu aðstæður. Allir velkomnir á upplestra þessa og er aðgangur ókeypis. Alls verða upplestrarnir þrír eða alla sunnudaga á aðventunni en dagskrána í heild má nálgast á heimasíðu Gljúfrasteins. Dagskráin hefst í dag kl. 16 en þá mun Einar Már Guðmundsson lesa úr ljóðabókinni Ég stytti mér leið framhjá dauðanum, Kristín Steinsdóttir les úr skáldsögunni Á eigin vegum, Sölvi Björn Sigurðsson les úr skáldsögunni Fljótandi heimur og Steinar Bragi les úr skáldsögu sinni Hið stórfenglega leyndarmál Heimsins. Þess má einnig geta að í móttökuhúsi er margmiðlunarsýning helguð ævi og verkum Halldórs Laxness, þar er einnig minjagripaverslun og aðgöngumiðasala. Í námunda við Gljúfrastein eru fallegar gönguleiðir. Safnið er opið alla daga nema mánudaga frá kl. 10-17.
Mest lesið Örlaganótt á Kiki varð að ást um ókomna tíð Lífið Þetta táknar flæmingi Páls Óskars: „Kommentakerfið logar af fólki sem talar eins og 1986“ Lífið Fréttatía vikunnar: Úkraína, hoppukastali og George R. R. Martin Lífið Sækir um sem kærasti með nýju húðflúri Bíó og sjónvarp Héldu annað brúðkaup í leyni á sveitasetri í Surrey Lífið Trump deilir myndum frá Íslandsferðinni Lífið Dóttir Ingu Lindar selur miðbæjarperlu Lífið „Við nýtum tækifærið og ræðum lífið og tilveruna“ Lífið Glæný stikla úr Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ Tíska og hönnun Fleiri fréttir Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira