Persónulegar kenndir 30. nóvember 2006 06:00 Sýnir myndskeið á mörkum listgreina.
Nú eru síðustu forvöð að upplifa myndbands-sviðsetningu Kristínar Helgu Káradóttur í Listasafni ASÍ við Freyjugötu. Sýningin nefnist „Þráðlaus tenging“ og er í svokallaðri Gryfju listasafnsins. Listakonan kemur sjálf fram í stuttum myndskeiðum sem er varpað upp í Gryfjunni. Myndskeiðin eru á mörkum þess að vera málverk, ljósmynd og kvikmynd. Myndböndin fléttast saman við sýningarsalinn sem umlykur þau með mjúkum leiktjöldum. Til að undirstrika stemninguna hefur tónlistarmaðurinn Bjarni Guðmann úr hljómsveitinni Úlpu, samið tónlist við verkin. Mörg af fyrri myndböndum Kristínar Helgu eru tilvistarlegs eðlis. Þau lýsa kenndum eða aðstæðum sem áhorfandanum gefst kostur á að upplifa á sinn hátt. Kristín Helga skipuleggur sjaldnast myndbönd sín fyrirfram heldur lætur þau ráðast í vinnuferlinu. Hún vinnur út frá tilfinningunni og notar orðlausa og leikræna tjáningu. Kristín Helga útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands árið 2004 með viðkomu í Listakademíunni í Kaupmannahöfn, sem skiptinemi. Sýningin stendur til sunnudagsins 3. desember en safnið er opið milli 13 og 17.
Menning Mest lesið Eva Laufey og Haraldur stækka við sig á Skaganum Lífið „Dýrmætt að fá að hafa þetta svona persónulegt“ Lífið Aldraður boltasækir steig síðasta dansinn Lífið Opnaði sig um skilnaðinn: „Hún eldar ekki, þrífur ekki og virðist ekki mjög móðurleg“ Lífið Nýr Rambo fundinn Bíó og sjónvarp Eigendaskipti á Kaffi Laugalæk: Breyta til en lofa sömu stemningu Lífið Tekinn fullur, missti fjölskylduna og fékk krabbamein á sama árinu Lífið Echoes of the End: Íslensk frumraun undir góðum áhrifum stríðsguðsins Leikjavísir Tilkynnti tólftu plötuna í hlaðvarpi kærastans Tónlist Stöðugt á ferð og flugi með sterkari skrokk Lífið samstarf Fleiri fréttir Kolfinna leikstýrir kærastanum í annað sinn Opnar femínískt myndlistagallerí í Vesturbænum „Það var tímapunktur sem ég talaði aldrei um neitt“ Galdrakarlinn í Oz aftur á fjalirnar Nýr barnakór Hallgrímskirkju stofnaður Bogi hljóp í skarðið fyrir Kristbjörgu Kjeld og ærði áhorfendur Risastór menningarhátíð á Flateyri Ofboðslega falleg berskjöldun Nýjum listaverkum komið upp á Héðinsreitnum Sjá meira